Skipulagsstjóri
Skipulagsstjóri er æðsti yfirmaður skipulags-og byggingarsviðs. Hlutverk hans er m.a. að vinna að stefnumótun og framtíðarsýn í skipulags- og byggingarmálum í samvinnu við skipulagsráð. Þá sér skipulagsstjóri um samskipti á sviði skipulagsmála bæði við önnur sveitarfélög, borgarstofnanir og þær ríkisstofnanir sem fjalla um skipulagsmál.
Skipulagsstjóri:
- Ber ábyrgð á stjórnun skipulags- og byggingarsviðs
- Hefur yfirumsjón með tengslum borgaryfirvalda við skipulags- og byggingarsvið
- Fer með lagalegt vald skipulagsfulltrúa sem skilgreint er í lögum.
- Hefur yfirumsjón með skipulagsgerð
- Hefur yfirumsjón með útgáfu framkvæmdaleyfa með samþykki borgaryfirvalda
- Hefur yfirumsjón með að framkvæmdir séu í samræmi við útgefin leyfi.
- Hefur yfirumsjón með að öll gögn sem skipulagsákvarðanir eru byggðar á séu varðveitt.
Ólöf Örvarsdóttir, arkitekt. Skipulagsstjóri

Netfang: olof.orvarsdottir@reykjavik.is
Viðtalstími: Mánudaga frá kl. 13-15.
Tekið er á móti viðtalsbeiðnum í síma 411 1111.