Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Ómerktur ofnæmis- og óþolsvaldur á umbúðum glassúrs frá Kötlu.

13.12.2011

Upplestur á frétt 

Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur

Efni: Ómerktur ofnæmis- og óþolsvaldur (afurð úr eggjum) á umbúðum glassúrs frá Kötlu.

Eðal ehf. Katla hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla af markaði eftirfarandi vöru þar sem ofnæmis- og óþolsvaldur er ekki merktur á umbúðum hennar: 

Vörumerki: Katla.
Vöruheiti: Glassúr (nokkrir litir).
Framleiðandi: Varan er framleidd af Eðal ehf. Kötlu,Kletthálsi 3, 110 Reykjavík.
Dreifing: Verslanir um land allt.

Ekki kemur fram í innihaldslýsingu að varan inniheldur eggjahvítu.  Egg og afurðir úr þeim eru á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda.  Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla.  Tekið skal fram að innköllunin á einungis við vörur þar sem ofnæmis- og óþolsvaldurinn er ómerktur.

Varan er skaðlaus fyrir þá sem ekki eru viðkvæmir fyrir eggjum og afurðum úr þeim.   Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru og eru viðkvæmir eggjum og afurðum úr þeim eru beðnir um að farga henni eða hafa samband við Eðal ehf. Kötlu í síma 567 4422.


Umhverfis- og samgöngusvið, Borgartúni 12-14.

Umhverfis- og samgöngusvið

Borgartúni 12-14
Sími 411 1111
Afgreiðsla - 8:20 - 16:15
umhverfissvid@reykjavik.is



Vottun hf, ÍST ISO 14001