Stefnumótun og þróun
Staðardagskrá 21 fyrir Reykjavík var fyrst samþykkt árið 2001 en endurskoðuð og samþykkt í borgarstjórn árið 2006 undir yfirskriftinni Reykjavík í mótun.
Staðardagsskrá 21 er heildaráætlun um þróun sérhvers samfélags á 21. öldinni. Áætluninni er ætlað að vera forskrift að sjálfbærri þróun, þ.e.a.s. yfirlýsing sveitarfélaga um hvernig þau ætla að tryggja komandi kynslóðum viðunnandi lífsskilyrði.
Helsta viðfangsefni deildar Stefnumótunar og þróunar á Umhverfis- og samgöngusviði er að fylgja eftir þeim verkefnum sem koma fram í Reykjavík í mótun og aðgerðaráætlun stefnunnar sem ráðist var í 2007 og kallast Græn skref í Reykjavík.
Hér gefur að líta nokkur af helstu verkefnum deildarinnar.