Bílastæðasjóður Reykjavíkur annast rekstur gjaldskyldra bílastæða og heldur uppi almennu eftirliti með bifreiðastöðum í borginni. Bílastæðasjóður sér um álagningu og innheimtu stöðvunarbrotagjalda auk þess sem honum hefur verið falið að byggja og reka bílastæðahús til almenningsnota.
Megintilgangurinn með rekstri sjóðsins er að stýra nýtingu bílastæða í því skyni að útvega gestum og viðskiptavinum vel staðsett skammtímastæði þar sem nauðsyn krefur. Bílastæðasjóði er skipt í 4 deildir: skrifstofu, viðhaldsdeild, húsadeild og útideild og starfsmenn eru 26 talsins. Heimasíða: hér.