Um sviðið
Ásýnd og ímynd Reykjavíkur endurspegli skapandi hugsun íbúa hennar þar sem mannlíf og umhverfi er haft í fyrirrúmi og gott er að búa.
Hluverk sviðsins er: Stefnumótun í umhverfismálum, þ.m.t. náttúruvernd, úrgangs– og loftslagsmálum og umsjón með framkvæmd og endurskoðun Staðardagskrár 21.
Stefnumótun í samgöngumálum, þ.m.t. stefnumótun í umferðaröryggismálum, almenningssamgöngum og bílastæðamálum, umferðarfræðsla og tillögur um forgangsröðun framkvæmda.
Forhönnun umferðarmannvirkja, þ.e. mat valkosta, mat á umhverfisáhrifum og samráð við íbúa og hagsmunaaðila um lausnir í samgöngumálum.
Dýraeftirlit, þ.e. meindýravarnir, hundaeftirlit, kattahald, varsla borgarlandsins og búfjáreftirlit. Heilbrigðis-, matvæla– og mengunareftirlit í Reykjavík.
Vöktun umhverfis og fræðsla á sviði umhverfismála. Náttúruvernd og garðyrkja í borgarlandinu og tillögur um framkvæmdir á opnum svæðum borgarinnar. Eftirlit með framkvæmdum og umhirðu á götum, gangstéttum, útivistar– og grænum svæðum borgarinnar.
Rekstur Vinnuskóla Reykjavíkur og Grasagarðs Reykajvíkur. Sorphirða frá heimilum í borginni og innleiðing stefnu í úrgangsmálum.