Sorphirða
NÝTT!
Styðjið á myndina: SORPHIRÐUDAGATAL FYRIR JAN TIL DES 2012

Árið 2011 voru gerðar eftirfarandi breytingar á sorphirðu í Reykjavík:
Sorphirða að jafnaði á 10 daga fresti:
Heimilissorp er hirt að jafnaði á 10 daga fresti í stað 7 daga. Sorpmagn hefur minnkað um 20% frá árinu 2007 og ættu breytingarnar því að hafa óveruleg áhrif á íbúa. Rúmist sorp ekki í núverandi ílátum með lengri losunartíðni eru íbúar hvattir til að auka flokkun og skila á grenndar- eða endurvinnslustöðvar eða að fjölga ílátum fyrir flokkað sorp við heimilið. Með 10 daga hirðu fellur hirðudagur ekki alltaf á sama vikudag eins og verið hefur og vegna helga sveiflast hirðutíðnin frá 9 upp í 11 daga. Til að auðvelda íbúum að átta sig á hvenær hirða fer fram hefur verið unnið hirðudagatal þar sem borginni er skipt upp í sjö hirðuhverfi. Dagatal fyrir jan til des 2012 er HÉR
Sorpílát 15 metra frá sorpbíl:
Af sorpílátum sem draga þarf lengra en 15 metra frá sorpgeymslu að sorpbíl til losunar skal greiða viðbótagjald skv. gjaldskrá fyrir sorphirðu í Reykjavík. Íbúar geta komist hjá gjaldi með því að færa tunnur sínar varanlega eða á losundardegi innan 15 metra. Öll sorpílát verða tæmd á losunardegi en þurfi ítrekað að sækja sorpílát lengra en 15 metra verður lagt á það viðbótargjald.
Viðbótargjald miðast við að sækja þurfi sorpílát lengra en 15 m frá sorpbíl: 4.000/ílát á ári m.v. losun á 10 daga fresti 2.000 kr./ ílát á ári m.v. 20 daga losun (græn og blá tunna). Gjaldið er lagt á frá og með 1. ágúst 2011.
Tekið verður við pöntunum um lengri losanir frá og með 1. febrúar í síma 411 1111 eða á netfangið sorphirda@reykjavik.is. Líkt og með aðra þjónustu sorphirðunnar sem hefur áhrif á sorphirðugjöld þarf hússtjórn fjöleignarhúsa að óska eftir breytingum. Þar sem ílát standa lengra en 15 metra frá sorpbíl við losun en íbúar vilja draga úr kostnaði við hirðu geta þeir trillað ílátum framar á losunardegi eða fært sorpgerðin varanlega.
Ætli lóðarhafar að færa sorpgeymslur innan lóðar þarf að sækja um byggingarleyfi fyrir framkvæmdum til byggingafulltrúa. Skipulags- og byggingarsvið mun veita allar frekari upplýsingar og vera íbúum innan handar með leiðbeiningar og ráðgjöf varðandi flutning sorpgeymslana þar sem því verður við komið í síma 411 1111 og byggingarfulltrui@reykjavik.is
Ílát fyrir endurvinnsluefni:
Síðla árs 2012 verður hafin hirða á flokkuðu sorpi við heimili. Innleiðing flokkunaríláta verður gerð í áföngum, hverfi fyrir hverfi, á árunum 2012 - 2013. Ekki er búið að fastmóta hvaða hverfi verða fyrst né heldur hvernig skuli flokka í ílátin en það verður kynnt síðar á árinu 2012. Íbúar sem hyggjast færa sorpgerði sín nær götu geta því gert ráð fyrir að í Reykjavík verði tvö sorpílát við hvert heimili.
Hafir þú spurningar varðandi fyrirhugaðar breytingar munum við fúslega svara þeim í síma 411 1111 eða á sorphirda@reykjavik.is
Sorphirða Reykjavíkurborgar
Sorphirða Reykjavíkurborgar heyrir undir Skrifstofu neyslu- og úrgangsmála og eru skrifstofurnar til húsa á Borgartúni 12-14 , 3. hæð. Sorphirða Reykjavíkurborgar sinnir hirðu á heimilissorpi frá íbúum í Reykjavík. Sorphirða hefur yfirumsjón með þjónustusamningum við Sorpu bs. um rekstur endurvinnslu- og grenndarstöðva og annast uppgjör til byggðasamlagsins vegna böggunar, flokkunar og urðunar á úrgangi. Allar upplýsingar sem þú þarft áttu að finna á síðum hér til vinstri. Ef þú hins vegar finnur ekki þær upplýsingar sem þú leitar að getur þú sent póst á: sorphirda@reykjavik.is eða í síma 411 1111. Símatími Sorphirðunnar er 8.30 - 9.00 og 13.00 - 14.00.