Öskufjúk / öskufall í Reykjavík

Aska getur borist til Reykjavíkur þegar mjög mikið öskufjúk er til staðar á öskufallsvæðum. Öskufjúk er líklegast þegar það er þurrt úti, suðaustlægar áttir ríkjandi og einhver vindur til staðar. Viðbragðsteymi í Reykjavík fyrir loftgæði sendir út tilkynningar ef ástæða er talin til.
Nánari upplýsingar um áhrif eldgosa má nálgast á eftirfarandi heimasíðum, sjá hér til hægri á síðunni undir Tengt efni.
Viðbrögð við öskufjúki / öskufalli (textinn hér að neðan er tekinn af síðu Umhverfisstofnunar, nánari upplýsingar má sjá á www.ust.is.)
Þegar skyggni er orðið fáir kílómetrar vegna ösku og klukkustundarmeðaltal svifryks fer yfir 400 µg/m3 er rétt að hafa eftirfarandi í huga:
- Ekki er nauðsynlegt fyrir fullfrískt fólk að nota grímu þegar farið er á milli staða, s.s. út í búð eða þess háttar
- Forðast langvarandi útiveru
- Íþróttaiðkun og útivist sem felur í sér áreynslu, s.s. trimm og erfiðar gönguferðir, getur valdið óþægindum í öndunarfærum
- Stjórnendur íþróttaviðburða ættu að íhuga frestun móta við þessar aðstæður, sérstaklega þegar börn eiga í hlut.
- Þeir sem nauðsynlega þurfa að dvelja langdvölum úti við ættu að íhuga að nota grímur (sjá leiðbeiningar um grímur að neðan)
- Ekki er mælt með langvarandi útiveru barna né að ungbörn sofi úti í vagni
Ákveðinn hópur fólks er viðkvæmari fyrir svifryki en aðrir, t.d. fólk með hjarta- og lungnasjúkdóma. Viðkvæmustu einstaklingar þess hóps geta fundið fyrir auknum einkennum frá sínum sjúkdómum við mun lægri styrki, jafnvel niður fyrir 100 µg/m3.
Heildarmagn þeirrar ösku sem einstaklingur andar að sér yfir daginn er háð styrk öskunnar í andrúmlofti og athöfnum viðkomandi. Þannig eykur útvera og aukin líkamleg áreynsla í miklu öskufoki innöndun öskunnar enn frekar. Þegar styrkur klukkutímameðaltals svifryks er farin að mælast í hundruðum míkrógramma á rúmmetra (µg/m3) er ekki hægt að mæla með langvarandi útiveru. Erfitt er að fastsetja ákveðna tölu en þó má segja að við 400 µg/m3 ætti fólk að forðast langvarandi óþarfa útiveru. Ekki eru alls staðar svifryksmælar en þegar skyggni er orðið fáir kílómetrar vegna öskufoks er mikið svifryk á ferðinni.
Aðgerðir eins og lýst er hér að ofan gagnast vel til að takamarka innöndun öskunnar í miklu öskufoki til að lágmarka áhrif á öndunarfærin. Viðbúið er að öskufok geti komið reglulega í sumar og því gott að þekkja til ráða sem lágmarka áhrif á öndunarfærin.