Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar eru veitt ár hvert í minningu Tómasar Guðmundssonar fyrir óprentað handrit að ljóðabók.
Verðlaunahafi fyrir árið 2011 var Sindri Freyson fyrir bók sína Í klóm dalalæðunnar. Dómnefnd verðlaunanna er skipuð af borgarráði og er hún skipuð þremur einstaklingum.
Útnefning borgarlistamanns er heiðursviðurkenning til handa reykvískum listamanni sem með listsköpun sinni hefur skarað fram úr og markað sérstök spor í íslensku listalífi. Menningar- og ferðamálaráð útnefnir borgarlistamann þann 17. júní ár hvert. Magnús Pálsson myndlistarmaður var útnefndur borgarlistamaður Reykjavíkurborgar 2011.