Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Bókmennaverðlaun Tómasar Guðmundssonar

Borgarstjóri og handhafi Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar 2012 Sindri Freysson

Upplýsingar og reglur

Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar eru veitt ár hvert í minningu Tómasar Guðmundssonar fyrir óprentað handrit að ljóðabók. Dómnefnd verðlaunanna er skipuð af borgarráði og er hún skipuð þremur einstaklingum, þar af einum samkvæmt tilnefningu menningar- og ferðamálaráðs og einum samkvæmt tilnefningu Rithöfundasambands Íslands. Dómnefnd skal skipuð í maí fyrir verðlaun komandi árs og ljúka störfum fyrir 15. ágúst árið eftir. Verðlaunaféð er greitt af Reykjavíkurborg og eru ein verðlaun veitt árlega í vetrarbyrjun. Auglýst er eftir handritum og skulu handrit sem keppa til verðlauna berast skrifstofu Menningar- og ferðamálsviðs síðasta lagi 1. júní 2012.

Dómnefnd árið 2012 skipa Davíð Stefánsson formaður og Bragi Ólafsson tilnefndir af menningar- og ferðamálaráði og Ingibjörg Haraldsdóttir tilnefnd af Rithöfundasambandi Íslands.

Auglýsing 2012

Reglur um Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar

Dómnefndir frá upphafi

Samkvæmt breytingum á samþykkt um Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar þann 16. júní 2005, eru verðlaunin nú veitt árlega fyrir óprentað handrit að ljóðabók.

Verðlaunahafi ársins 2011 var Sindri Freysson fyrir bók sína Í klóm dalalæðunnar.

Verðlaunahafar frá upphafi