Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Kjarvalsstofa í París

Kjarvalsstofa í París

Kjarvalsstofa í París er stúdíóíbúð með vinnuaðstöðu, sem ætluð er til dvalar fyrir listamenn. Stofan er í eigu Reykjavíkurborgar, mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Seðlabanka Íslands.

Reykjavík Loftbrú

Reykjavík Loftbrú

Skrifstofa menningar- og ferðamála vistar sjóðinn Reykjavík Loftbrú sem ætlað er að styðja framsækið íslenskt tónlistarfólk til að hasla sér völl á erlendri grund og kynna í leiðinni Reykjavík sem nútímalega menningarborg.

.

Villa Bergshyddan í Stokkhólmi

Menningarmálasvið Stokkhólmsborgar býður dvöl í gestabústaðnum Villa Bergshyddan í Stokkhólmi. Við dvölina gefst tækifæri til að kynnast Stokkhólmi og mynda tengsl með mögulega samvinnu í huga.

.

Muggur ferðasjóður

Muggur er sjóður á vegum menningar- og ferðamálaráðs, Sambands íslenskra myndlistarmanna og Myndstefs og annast Samband íslenskra myndlistarmanna umsýslu hans.

Félag íslenskra leikara

Talía ferðasjóður

Talía er sjóður í eigu Félags íslenskra leikara, Félags leikskálda og handritshöfunda, Félags leikstjóra á Íslandi og Reykjavíkurborgar. Félag íslenskra leikara annast umsýslu hans.

.

Nýsköpunarsjóður tónlistar - Musica Nova

Nýsköpunarsjóður tónlistar - Musica Nova var stofnaður árið 2003 af Tónskáldafélagi Íslands með stofnframlagi frá Reykjavíkurborg.