Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Reykjavík Loftbrú

Iceland Airwaves vistar sjóðinn Reykjavík Loftbrú sem ætlað er að styðja framsækið íslenskt tónlistarfólk til að hasla sér völl á erlendri grund og kynna í leiðinni Reykjavík sem nútímalega menningarborg. Aðilar að Reykjavík Loftbrú eru Samtök tónskálda og eigenda flutningsréttar (STEF), Félag hljómplötuframleiðenda (FHF), Reykjavíkurborg og Icelandair. Stjórn Reykjavíkur Loftbrúar samþykkti á stjórnarfundi sínum 24. maí 2012 að framlengja starfstíma sjóðsins með breyttum skilyrðum til desember 2014.

24. maí 2012:
Reykjavík Loftbrú sjóðurinn verður framvegis vistaður hjá Iceland Airwaves sem mun taka við umsóknum og sjá um samskipti við umsækjendur. Nýtt umsóknareyðublað með breyttum skilyrðum mun liggja fyrir í byrjun næstu viku. Umsóknum skal skilað á loftbru@icelandairwaves.is fyrir 1. júní nk.

Breytingar á skilyrðum samþykktar á stjórnarfundi Reykjavík Loftbrú 24. maí 2012:  

1. gr.
Grunnskilyrði og staðfestingar

...
Skilyrði styrkveitinga frá Reykjavík Loftbrú er að styrkþega hafi komið fram opinberlega á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves og uppfylli annað hvort af eftirfarandi skilyrðum:

i. Hafi gefið út efni með eigin verkum og/eða flutningi.
ii. Geti lagt fram gögn um verkefni á erlendri grundu sem að samdóma mati úthlutunarnefndar er talið geta styrkt ímynd Íslands og Reykjavíkur sem uppsprettu framsækinnar menningar og öflugs tónlistarlífs.
...

Önnur helstu skilyrði og fyrirkomulag eru sem áður:

• Umsóknarfrestur er síðasti dagur hvers mánaðar og þurfa umsóknir að hafa borist fyrir miðnætti þann dag.
• Sækja þarf um styrk til ferðar með að lágmarki fjögurra vikna fyrirvara, þ.e.a.s. brottfarardagur má ekki vera innan fjögurra vikna frá síðasta skiladegi umsókna í hverjum mánuði.
• Stuðningur Reykjavíkur Loftbrúar er í formi farmiða sem bókaðir eru um leið og úthlutað er.  Hámark fjárhæðar per farmið er ísk 80.000,-  Sjóðurinn veitir jafnfram styrkþegum heimild til yfirvigtar allt að 50kg á einstakling – eða 250kg að hámark á verkefni sem sækja þarf sérstaklega um á vef Icelandair ef til úthlutunar kemur.
• Styrkþegar fá staðfestingu á úthlutun í tölvupósti og þurfa að ganga frá flugbókun sinni innan 3ja daga frá því þeim degi að staðfesting berst.  Hafi styrkþegi ekki gengið frá bókun og greiðslu skatta á vef Icelandair innan þess tíma fellur úthlutunin niður.
• Styrkþegar bera sjálfir kostnað af hugsanlegri uppfærslu og/eða breytingum á miða eftir úthlutun auk þess sem greiðsla flugvallarskatta er á ábyrgð styrkþega.
• Hámarks fjöldi fyrir hvert verkefni er 8 flugmiðar á áfangastað Icelandair (án skatta) fram og til baka.
• Umsóknir skulu innihalda greinargóða lýsingu á verkefninu, upplýsingar ferðadaga, áfangastað, kennitölur og nákvæmt hlutverk hvers og eins í verkefninu.
• Styrkþegar skulu undirrita samning þar sem kveðið er á um gagnkvæmar skyldur og skal samningur liggur fyrir undirritaður innan 7 daga frá úthlutunardegi.

Skilyrði um stykveitingu Reykjavík Loftbrúar - samþykkt í maí 2012

Greinargerð vegna styrks úr Reykjavík Loftbrú (PDF skjal) - skilist eigi síðar en 1 mánuði eftir heimkomu