Um verkefnið
Um er að ræða tilraunaverkefni þar sem íbúum er gefinn kostur á að forgangsraða fjármunum til smærri nýframkvæmda og viðhaldsverkefna í hverfunum í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2010. Niðurstaða kosningarinnar er bindandi fyrir borgaryfirvöld. Þannig er um nýmæli er að ræða við fjárhagsáætlunargerð sem gerir íbúum kleift að hafa bein áhrif á nýtingu fjármuna í sínu nærumhverfi.
Kosið er á milli þriggja verkefnaflokka. Sá verkefnaflokkur sem flest atkvæði hlýtur í hverju hverfi verður settur á fjárhagsáætlun og framkvæmdur á árinu 2010. Íbúar forgangsraða með því að raða númerum 1, 2 og 3 fyrir framan verkefnaflokkana (1 mikilvægast, 2 næst mikilvægast og 3 minnst mikilvægt). Verkefnaflokkarnir eru:
a) Leikur og afþreying
b) Samgöngur
c) Umhverfi og útivist
Undir hvern verkefnaflokk heyra eitt til sex verkefni og fer fjöldi og umfang verkefnanna eftir kostnaði við þau og íbúafjölda hverfanna.
Haft var náið samráð við hverfisráð í öllum hverfum borgarinnar og íbúasamtök um verkefnin til að tryggja að verkefnin sem kosið er um séu í sem bestu samræmi við væntingar íbúa. Íbúasamtökin og hverfisráðin settu fram tillögur að verkefnum fyrir hvert hverfi. Í framhaldinu rýndi vinnuhópur sem skipaður var fulltrúum frá skrifstofu borgarstjóra, umhverfis- og samgöngusviði og framkvæmda- og eignasviði verkefnin. Í þeirri vinnu var lögð áhersla á að velja þau verkefni sem hverfisráðin og íbúasamtökin lögðu áherslu á að teknu tilliti til fjárhagsramma hverfis, dreifingu verkefna innan hverfis og að verkefnin væru smærri nýframkvæmda og viðhaldsverkefni. Að lokum voru verkefnin lögð fyrir framkvæmdaráð til kynningar. Þá naut Reykjavíkurborg ráðgjafar Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands við útfærslu verkefnisins.
Heildar fjárhagsrammi verkefnisins er kr. 100.000.000. Til úthlutunar fjármagns milli hverfanna var notast við þá reiknireglu að hverju hverfi var úthlutaður ákveðinn grunnur og viðbótarfjárframlagi miðað við íbúafjölda. Þannig fékk hvert hverfi kr. 3.000.000 og síðan fengu hverfin kr. 600 framlag fyrir hvern íbúa í hverfinu. Samtalan var síðan námunduð þannig að upphæðirnar stæðu á heilli eða hálfri milljón.
Samþykkt borgarstjórnar um verkefnið
Ábyrgðarmaður verkefnsins er Ólafía Dögg Ásgeirsdóttir starfsmaður á skrifstofu borgarstjóra, netfang: olafia.dogg.asgeirsdottir@reykjavik.is.