Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

 

 

15.12.2009

Umhverfi og útivist efst í huga borgarbúa við forgangsröðun framkvæmda í hverfum

Kjóstu verkefni í þínu hverfi

Netkosningu um forgangsröðun fjármuna til nýframkvæmda og viðhaldsverkefna í hverfum Reykjavíkurborgar er lokið. Alls kusu 5.876 Reykvíkingar í netkosningunni eða 6,2% kosningabærra sem voru allir Reykvíkingar á 16. aldursári og eldri. Kosið var um forgangsröðun framkvæmda og voru verkefni í flokknum Umhverfi og útivist sett efst í forgangsröð af íbúum í átta hverfum af tíu. Aðrir verkefnaflokkar sem valið stóð um voru Leikur og afþreying og Samgöngur.

Alls verður 100 milljónum króna varið til þeirra verkefna sem kosið var um og  fjármunum skipt á milli hverfa í samræmi við fjölda íbúa. Verkefnin tóku mið af ábendingum íbúa, hverfaráða og íbúasamtaka, en flestar óskir og ábendingar sem Reykjavíkurborg berast snerta smærri nýframkvæmdir og viðhaldsverkefni í hverfum. Verkefnin sem hér um ræðir eru aðeins hluti þeirra framkvæmda sem ráðist verður í á næsta ári í hverfum borgarinnar.

Kosningin tekur mið af áherslum borgarstjórnar Reykjavíkur sem vill auka þátttöku íbúa í ákvarðanatöku. Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands veitti Reykjavíkurborg ráðgjöf og margvíslega aðstoð í verkefninu. Markmiðið með verkefninu var að kanna áhuga íbúa á þátttöku í forgangsröðun við fjárhagsáætlanagerðina og þróa aðferðir til íbúakosningar á netinu. Um tilraun var að ræða sem óhætt er að segja að hafi skilað góðum árangri.

Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri: “Það er mjög ánægjulegt að svo margir borgarbúar hafi sýnt áhuga á að taka þátt í þessu fyrsta tilraunaverkefni okkar af þessum toga þ.e. að kjósa á vefnum um forgangsröðun fjármuna. Það er mikilvægt að virkja borgarbúa til þátttöku því þannig fá borgaryfirvöld nauðsynleg skilaboð um vilja þeirra sem búa í hverfum borgarinnar.”

Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, sem veitti Reykjavíkurborg ráðgjöf vegna verkefnisins segir: “Markmið kosningarinnar  var annars vegar að glæða áhuga íbúanna á málefnum hverfanna og hins vegar að gera tilraun til að gefa þeim tækifæri til áhrifa. Bæði markmiðin tókust nokkuð vel. Hvað varðar fyrra markmiðið má segja að meiri fjöldi íbúa hafi tekið þátt í að taka bindandi ákvarðanir um forgangsröðun verkefna í sínum hverfum en nokkur dæmi eru til á Íslandi eða hátt í 6 þús. manns.”


 Niðurstöður kosningarinnar í einstökum hverfum voru eftirfarandi :

Mynd 1. Aldursdreifing þátttakenda
Mynd 1. Aldursdreifing þátttakenda

Í Árbæ settu  íbúar verkefnaflokkinn Umhverfi og útivist efst í forgangsröðina. Eftirfarandi verkefni fara því á framkvæmdalista fyrir árið 2010 í hverfinu:

a) Trimmtæki í Elliðaárdal, á móts við Árbæ
b) Nestisaðstaða í Elliðaárdal, á móts við Árbæ
c) Áningarstaðir við Árbæjarstíflu og Rauðavatn  

Í Breiðholti settu íbúar verkefnaflokkinn Umhverfi og útivist efst í forgangsröðina. Eftirfarandi verkefni fara því á framkvæmdalista fyrir árið 2010 í hverfinu:

a) Nestisaðstaða við Elliðaárdal – Fell
b) Nestisaðstaða við Steinasel-Holtasel
c) Trimmtæki við Steinasel-Holtasel
d) Trimmtæki við Suðurfell
e) Fjölga bekkjum og ruslastömpum í hverfinu
f) Gróður og gróðursetning í hverfinu í samráði við hverfisráð

Í Grafarholti/Úlfarsfelli settu íbúar verkefnaflokkinn Umhverfi og útivist efst í forgangsröðina. Eftirfarandi verkefni fara því á framkvæmdalista fyrir árið 2010 í hverfinu:

a) Trimmtæki í Leirdal
b) Gróður og gróðursetning í hverfinu í samráði við hverfisráð
c) Nestisaðstaða í Leirdal

Í Grafarvogi settu íbúar verkefnaflokkinn Umhverfi og útivist efst í forgangsröðina. Eftirfarandi verkefni fara því á framkvæmdalista fyrir árið 2010 í hverfinu:

a) Gróðursetning og áningarstaður á Gufunessvæði
b) Fjölgun bekkja og ruslastampa í hverfinu
c) Nestisaðstaða við útivistarstíg meðfram ströndinni í norðanverðu Grafarvogshverfi
d) Drykkjarfontur við útivistarstíginn meðfram ströndinni í norðanverðu Grafarvogshverfi
e) Trimmtæki við Gufunesbæ og við útivistarstíginn meðfram ströndinni í norðanverðu Grafarvogshverfi

Í Háaleitis- og Bústaðarhverfi settu íbúar verkefnaflokkinn Umhverfi og útivist efst í forgangsröðina. Eftirfarandi verkefni fara því á framkvæmdalista fyrir árið 2010 í hverfinu:

a) Fjölga bekkjum og ruslastömpum í hverfinu
b) Trimmtæki í Fossvogsdal
c) Nestisaðstaða í Garðaflöt við Hólmgarð
d) Nestisaðstaða í Grundagerðisgarði
e) Lagfæra opið svæði milli Háaleitisbrautar og Síðumúla

Í Hlíðum settu íbúar verkefnaflokkinn Umhverfi og útivist efst í forgangsröðina. Eftirfarandi verkefni fara því á framkvæmdalista fyrir árið 2010 í hverfinu:

a) Setja nestisaðstöðu á Miklatún á tveimur stöðum
b) Fjölga bekkjum og ruslastömpum við göngustíga í hverfinu
c) Setja trimmtæki og leiktæki á Miklatún

Á Kjalarnesi settu íbúar verkefnaflokkinn Leikur og afþreying efst í forgangsröðina. Eftirfarandi verkefni fara því á framkvæmdalista fyrir árið 2010 í hverfinu:

a) Leiktæki við Klébergslaug
b) Útikennslustofa (bekkir, borð o.fl.)

Í Laugardal settu íbúar verkefnaflokkinn Samgöngur efst í forgangsröðina. Eftirfarandi verkefni fara því á framkvæmdalista fyrir árið 2010 í hverfinu:

a) Hraðahindrandi aðgerðir á umferðargötum við gönguleiðir skólabarna í Voga-,  Laugarnes- og Langholtsskóla
b) Hraðamælingarskilti á Reykjaveg annars vegar og hins vegar á Langholtsveg nærri Langholtsskóla

Í Miðborginni settu íbúar verkefnaflokkinn Umhverfi og útivist efst í forgangsröðina. Eftirfarandi verkefni fara því á framkvæmdalista fyrir árið 2010 í hverfinu:

a) Torg á mótum Óðinsgötu, Nönnugötu og Baldursgötu gert vistlegt (fækka bílastæðum með t.d gróðursetningu, blómakerum, bekkjum og ruslastömpum)
b) Nestisaðstaða í Hallargarði

Í Vesturbænum settu íbúar verkefnaflokkinn Umhverfi og útivist efst í forgangsröðina. Eftirfarandi verkefni fara því á framkvæmdalista fyrir árið 2010 í hverfinu:

a) Fjölga bekkjum og ruslastömpum í hverfinu
b) Trimmtæki við göngustíg á Ægisíðu
c) Nestisaðstaða við Lynghaga  
d) Nestisaðstaða á Landakotstúni
e) Gróðursetning á Lynghaga / Landakotstúni / Álagranda / Granaskjóli
f) Lýsing á listaverk við Hagatorg (Erling BB) og listaverk við Hótel Sögu (Natóeldur)