Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Fjárhagsleg tengsl kjörinna fulltrúa

 Borgarráð samþykkti á fundi sínum 29. október 2009 reglur um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum borgarfulltrúa og trúnaðarstörfum utan borgarstjórnar, en vísað er til þeirra í nýsamþykktum siðareglum kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg. Í reglunum er kveðið á um að skrifstofa borgarstjórnar skuli halda skrá, og birta opinberlega, um fjárhagslega hagsmuni borgarfulltrúa svo og um trúnaðarstörf þeirra utan borgarstjórnar, en skráin er byggð á upplýsingum sem borgarfulltrúar láta sjálfir í té. Reglurnar eru efnislega samhljóða reglum Alþingis um samsvarandi skráningu fjárhagslegra hagsmuna og trúnaðarstarfa þingmanna. Fulltrúar í fagráðum, sem ekki eru borgarfulltrúar, geta einnig skráð upplýsingar í samræmi við reglurnar, sem og varaborgarfulltrúar sem taka fast sæti í borgarstjórn.

Reglurnar tóku gildi við samþykkt borgarráðs 29. október 2009 og upplýsingar voru fyrst birtar á heimasíðu Reykjavíkurborgar á grundvelli þeirra 1. desember s.á. Reglurnar verða yfirfarnar og endurskoðaðar eftir þörfum, þó a.m.k. árlega.

Reglur um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum borgarfulltrúa

 

Áslaug María Friðriksdóttir

Björk Vilhelmsdóttir

Dagur B. Eggertsson

Diljá Ámundadóttir

Einar Örn Benediktsson

Gísli Marteinn Baldursson

Hanna Birna Kristjánsdóttir

Hermann Valsson

Hildur Sverrisdóttir

Jón Gnarr

Jórunn Ósk Frímannsdóttir Jensen

Júlíus Vífill Ingvarsson

Karl Sigurðsson

Kjartan Magnússon

Margrét Sverrisdóttir

Oddný Sturludóttir

Óttarr Ólafur Proppé

S. Björn Blöndal

Sóley Tómasdóttir

Stefán Jóhann Stefánsson

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir

Þorleifur Gunnlaugsson