Styrkbeiðnir utan hefðbundins styrkjaferils eru eingöngu tilkomnar vegna tilfallandi verkefna eða viðburða sem ber brátt að og ekki var hægt að sjá fyrir eða skipuleggja í aðdraganda almennrar styrkjaúthlutunar. Umsóknarfrestur 2012 er fyrir 1. febrúar, 1. maí, 1. september eða 1. desember 2012.
Reykjavíkurborg veitir ár hvert félagasamtökum, fyrirtækjum og einstaklingum styrki til starfsemi og þjónustu sem fellur að hlutverki sveitarfélagsins eða telst á annan hátt í samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröðun borgaryfirvalda.