Skyndistyrkir menningar- og ferðamálaráðs
Styrkbeiðnir utan hefðbundins styrkjaferils eru eingöngu tilkomnar vegna tilfallandi verkefna eða viðburða sem ber brátt að og ekki var hægt að sjá fyrir eða skipuleggja í aðdraganda almennrar styrkjaúthlutunar. Þær eru að jafnaði aðeins afgreiddar ársfjórðungslega, í febrúar, maí, september og desember og þá vegna verkefna á árinu sem ekki eru hafin. Styrkbeiðnir eru fyrst lagðar til kynningar á fundi menningar- og ferðamálaráðs og síðan afgreiddar á næsta fundi.
Umsóknarfrestur 2012 er fyrir 1. febrúar, 1. maí, 1. september eða 1. desember 2012.
Sækja ber um á sérstökum eyðublöðum sem eru vistuð hér.
Gildandi verklagsreglur samþykktar af menningar- og ferðamálaráði 13. desember 2010 má nálgast hér.