
Ertu með hugmynd að verkefni sem þig langar til að framkvæma? Nú er tækifærið! Reykjavíkurborg býður nú ungu fólki (35 ára og yngra) verkefnastyrki til atvinnusköpunar. Settu hugmyndir á blað og sendu inn umsókn.
Eyðublað fyrir umsókn um verkefnastyrk til atvinnusköpunar ungs fólks (pdf)
Eyðublað fyrir greinargerð um ráðstöfun styrks (pdf)
Næsti umsóknarfrestur er til 1. september 2010.
Markmiðið með sjóðnum er að hvetja ungt fólk til atvinnusköpunar og stuðla að auknum lífsgæðum borgarbúa með verkefnum sem fegra umhverfið og/eða eru nýsköpun í þjónustu. Við úthlutun fjármagns verður tekið mið af því að verkefnin leiði af sér sem flest ný störf, auðgi borgarlífið og hvetji ungt fólk áfram til dáða.
Alls eru til ráðstöfunar 30 milljónir en umsóknarfrestir verða þrír á árinu 2010.
Aðstoð og nánari upplýsingar um sjóðinn veitir Hans Orri Kristjánsson, verkefnisstjóri á skrifstofu borgarstjóra, í síma 411-4506, hans.orri.kristjansson@reykjavik.is.
Hægt er að senda umsóknir á netfangið vertumed@reykjavik.is eða í Ráðhús Reykjavíkur merkt „Vertu með.“
Auglýsing birt 7. ágúst 2010 (pdf 16 KB)
Verkefni geta en þurfa ekki að falla undir vinnumarkaðsúrræði Vinnumálastofnunar sem heimilt er að veita styrki til skv. reglugerð 012/2009. Nánari upplýsingar um vinnumarkaðsúrræði eru á heimasíðu Vinnumálastofnunar.
Umsóknarferlið
1. Styrkir eru auglýstir til úthlutunar þrísvar á árinu; 1. mars, 15. maí og 1. september. Umsóknum er skilað annaðhvort með tölvupósti eða útprentuðum í Ráðhús Reykjavíkur. Umsóknir eru metnar og afgreiddar af úthlutunarnefnd.
2. Ákvörðun um úthlutun mun liggja fyrir innan 6 vikna eftir að umsóknarfrestur er liðinn.
3. Að lokinni úthlutun er öllum umsækjendum sent bréf um ákvörðun nefndarinnar innan tveggja daga frá ákvörðunardegi.
4. Gerður er samningur við styrkþega
Frekar gögn til stuðnings:
Sóknaráætlun Reykjavíkurborgar - kynning á drögum (pdf 856 KB)
Grænu skrefin (hlekkur)
Upplýsingar um fyrri úthlutanir:
Úthlutun í apríl (pdf)
Úthlutun í júní (pdf)
Úthlutun i september (pdf)
In English:
Take Part in Creating a Better City
Do you have a clever idea that you want to carry out? Now is the time! The City of Reykjavík offers young people (35 years old and younger) project grants for job creating.
The City of Reykjavík wants to encourage young people to shine and increase the quality of life for its citizens. Projects that promote the beautification of the city environment and/or offer innovative approaches to city services will be supported with funding. Projects from which the most jobs derive from and who enrich the city’s culture by utilizing young people will be more eligible for grants.
In total 30 million ISK will be allocated in the year 2010 and there will be three deadlines for application; 1st of March, 15th of May and 1st of September.
So put your ideas to work, send in an application and take part in creating a Better City.
For further information please contact Hans Orri Kristjánsson, project manager at the Mayor's Office in Reykjavík, Tel. 411-4506 or by email: hans.orri.kristjansson@reykjavik.is