Atvinnuleysi og fjármál
Austurstræti verður göngugata - Framkvæmdir hafnar
Framkvæmdir eru hafnar við að breyta Austurstræti milli Lækjargötu og Pósthússtrætis í göngugötu. Ásýnd strætisins breytist nokkuð því grænu stálpollarnir sem liggja eftir endilöngu strætinu við núverandi bílastæði verða fjarlægðir og skapast þar svigrúm fyrir mannlífið í götunni.
Grafarholtssókn - Gáttin - Hamingju-hádegi
Grafarholtssókn hlaut styrk til að bjóða atvinnuleitendum upp á Gáttina, opið hús í Guðríðarkirkju, sem var síðar breytt í Hamingju-hádegi. Gáttin var opin einu sinni í viku í hádeginu vorið 2009 og var atvinnuleitendum boðið upp á súpu og aðstöðu til að hitta annað fólk í sömu stöðu. Haustið 2009 hélt starfið áfram undir heitinu Hamingjuhádegi og var þá hætt að auglýsa það sérstaklega fyrir atvinnuleitendur en allir íbúar boðnir velkomnir. Markmiðið hélst þó það sama þ.e. að efla samfélagsandann og að vera upplífgandi mótvægi við neikvæð áhrif efnahagshrunsins á líðan fólks.
Knattspyrnufélagið Valur - Virknisetur á Hlíðarenda
Knattspyrnufélagið Valur hlaut styrk til að halda úti Virknisetri á Hlíðarenda. Ætlunin með virknisetrinu var að bjóða almenningi og þá sérstaklega atvinnulausum einstaklingum upp á íþróttaaðstöðu þeim að kostnaðarlausu. Ráðinn var þjálfari til að vera í húsnæði Vals á Hlíðarenda og til að taka á móti og leiðbeina þátttakendum sem vildu nýta sér líkamsræktaraðstöðuna.
Neytendasamtökin - Fjármálanámskeið
Neytendasamtökin hlutu styrk um haustið 2008 til að halda fjármálanámskeið fyrir almenning. Haldin voru námskeið í þjónustmiðstöðvum borgarinnar sem opin voru öllum borgarbúum auk þess sem sérstök ungmennanámskeið voru haldin í samvinnu við Hitt húsið en þau báru heitið Klár í kreppu?