Tillaga um forvarna- og framfarasjóð Reykjavíkurborgar var samþykkt í borgarráði þann 29. nóvember 2007. Markmið með stofnun sjóðsins er að stuðla að árangri í forvarnastarfi, eflingu félagsauðs, auknu öryggi íbúa og bættri umgengni í borginni. Ennfremur er það verkefni sjóðsins að gefa einstaklingum, félagasamtökum og fyrirtækjum tækifæri til frumkvæðis og nýsköpunar á sviði forvarna og framfara í samstarfi við fagsvið Reykjvíkurborgar og þjónustumiðstöðvar velferðarsviðs.
Auglýsing fyrir Forvarna- og framfarasjóð Reykjavíkurborgar (pdf)
Umsóknarfrestur í sjóðinn er til og með 1. október 2010.
Eyðublað fyrir umsókn um styrk úr Forvarna- og framfarasjóði Reykjavíkurborgar (pdf)
Leiðbeiningar vegna umsóknar um styrk úr Forvarna- og framfarasjóði Reykjavíkurborgar (pdf)
Úthlutunarreglur Forvarna- og framfarasjóðs Reykjavíkurborgar (pdf 20 KB)
Hægt verður að senda umsóknir á netfangið ennbetri@reykjavik.is eða í Ráðhús Reykjavíkur merkt „Enn betri Reykjavík.“
Upplýsingar um úthlutun sjóðsins í maí 2010 (pdf 63 KB)
Upplýsingar um úthlutun sjóðsins í desember 2009 (pdf 84 KB)
Upplýsingar um úthlutun sjóðsins í júní 2009 (pdf 80 KB)
Upplýsingar um úthlutun sjóðsins í desember 2008 (pdf 80 KB)
Upplýsingar um úthlutun sjóðsins í október 2008 (pdf 40 KB)
Eyðublað fyrir greinargerð um ráðstöfun styrkfjár (pdf)
Merki borgarinnar til að setja á kynningarefni
Nánari upplýsingar um Forvarna- og framfarasjóðinn veita: Regína Ásvaldsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu borgarstjóra, í síma 411-4500, regina.asvaldsdottir@reykjavik.is og Hildur Kjartansdóttir, verkefnisstjóri á skrifstofu borgarstjóra, í síma 411-4504, hildur.kjartansdottir@reykavik.is. Einnig má senda inn fyrirspurnir á netfangið ennbetri@reykjavik.is
Forvarnarstefna Reykjavíkurborgar (pdf 318 KB)
Þjónustumiðstöðvar eru í sex hverfum borgarinnar og sinna þjónustu við einstaklinga og fjölskyldur, sérfræðiþjónustu við leik- og grunnskóla, frístundaráðgjöf auk almennrar upplýsingagjafar um starfsemi Reykjavíkurborgar. Þær bera ábyrgð á framkvæmd forvarnarstefnu Reykjavíkurborgar og þar fer fram faglegt samstarf með áherslu á samþætta þjónustu.
Hlekkur á nánari upplýsingar um þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar
Hlekkur á hverfaskiptingu Reykjavíkurborgar

Fyrsta úthlutun úr sjóðnum fór fram í Höfða 27. október 2008