Hverfislögregla
Löggæsla í Árbæjar- Selás- Grafarvogs- Grafarholts- og Grundarhverfi á Kjalarnesi. Mosfellsbæ og Kjósarsýslu.
Samkvæmt nýju skipulagi annast lögreglustöð 4 löggæslu á svæði austan Elliðaáa í ofangreindum hverfum og byggðarkjörnum.
Starfsemi lögreglustöðvar 4 er nú öll komin á Krókháls í Árbænum og því hefur lögreglustöðinni á
Völuteigi 8 í Mosfellsbæ verið lokað. Þar höfðu rannsóknarlögreglumenn aðstöðu en þeir fluttu sig um set
í síðustu viku og hafa nú komið sér fyrir á Krókhálsi 5a, 2. hæð.
Í sama húsi, eða á Krókhálsi 5b, er gerð út almenn löggæsla (sólarhringsvaktir-útköll) fyrir svæðið.
Undir lögreglustöð 4 heyra Árbær, Norðlingaholt, Grafarvogur, Grafarholt, Mosfellsbær, Kjalarnes og Kjósarhreppur. Stöðvarstjóri á lögreglustöð 4 er Árni Þór Sigmundsson aðstoðaryfirlögregluþjónn en aðrir stjórnendur eru Einar Ásbjörnsson lögreglufulltrúi og Eggert Ólafur Jónsson aðalvarðstjóri.
Almennum fyrirspurnum og upplýsingum til lögreglu er hægt að koma á framfæri í síma 444-1180 allan sólarhringinn og fyrirspurnum um rannsóknir mála í síma 444-1190 á skrifstofutíma. Ef óskað er eftir skjótri aðstoð lögreglu ber að hringja í 112.
Netföng: arni.sigmundsson@lrh.is ehe@lrh.is einar.asbjornsson@lrh.is