Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Árbær

Selás, Árbær, Ártúnsholt, Bæjarháls, Norðlingaholt.

Árbær

Hverfið samanstendur af Ártúnsholti, bæjum, hálsum, Selási og Norðlingaholti. Í hverfinu er stórt atvinnusvæði þar sem mörg af stærstu fyrirtækjum landsins eru með aðsetur. Í hverfinu eru  6.000 störf í um 370.808 m2 atvinnuhúsnæðis.

Íbúafjöldi hverfisins er 10.357 á 3.750 heimilum. Í samanburði við borgina alla þá einkennir íbúasamsetninguna mikill fjöldi barna og ungmenna en í Árbæ eru 25,1% íbúa 0-16 ára en í Reykjavík allri er þessi aldurshópur 21,4% íbúa. Að sama skapi er minna af eldri borgurum í hverfinu, 7,5% samanborið við ríflega 11% íbúa í allri Reykjavík.

Eitt af einkennum hverfisins er mikil nánd við náttúruna og ein helsta útivistarperla borgarinnar er Elliðaárdalurinn. Dalurinn er afar vinsæll meðal hverfisbúa til íþróttaiðkunar og útivistar. Ein fjölsóttasta sundlaug landsins, Árbæjarlaug, er í hjarta hverfisins. Hverfið státar einnig af metnaðarfullu starfi í átta leikskólum, fjórum grunnskólum og fjórum frístundaheimilum, tveimur öflugum félagsmiðstöð, Árbæjarsafni og íþróttafélaginu Fylki.

Reykjavíkurborg rekur víðtæka þjónustu í hverfinu, meðal annars í gegnum Þjónustumiðstöð Árbæjar sem staðsett er að Hraunbæ 115.