Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Framkvæmdir í Árbæ 2010

Norðlingaholt

Hér að neðan er yfirlit yfir helstu framkvæmdir á vegum Reykjavíkurborgar í hverfinu á árinu 2010

Íbúðasvæði - Norðlingaholt

–     Áframhaldandi uppbygging hverfis, einkum er um að ræða gönguleiðir, ræktun, gróðursetningu og frágang.

Norðlingaskóli

–     Stefnt er að því að taka í notkun 1. áfanga, um 2200 m², á árinu (áfangi grunnskólans).

–     Áætluð verklok húss og lóðar eru í ágúst 2013.

Víðidalur  og Almannadalur – hesthúsasvæði

–     Áframhaldandi framkvæmdir verða við reiðstíga o.fl.

Umferðaröryggismál

–     Gönguleiðir skólabarna, 30 km hverfi og endurbætur á vástöðum. Verið er að vinna að greiningu á þörf fyrir aðgerðir ásamt forgangsröðun framkvæmda í borginni í heild á vegum Umhverfis- og samgöngusviðs.

Verkefni sem urðu fyrir valinu í íbúakosningu

–     Trimmtæki í Elliðaárdal á móts við Árbæ.

–     Nestisaðstaða í Elliðaárdal á móts við Árbæ.

–     Áningarstaður við Árbæjarstíflu og Rauðavatn.

Annað

–     Í skoðun er gerð göngubrúar yfir Breiðholtsbraut á móts við Norðlingaholt, hafin er vinna við undirbúning í samvinnu við Vegagerðina.