Stolt Árbæjar

Hvert einasta hverfi borgarinnar allt frá Vesturbæ norður á Kjalarnes er ómissandi þáttur í heildarmynd Reykjavíkur. Öll búa hverfin yfir ákveðinni sérstöðu og státa af Stoltum í mannlífi, umhverfi og aðstæðum, samanber listann að neðan yfir stolt Árbæjar.
• Útinámi í skólastarfi hefur vaxið fiskur um hrygg í Árbænum síðustu ár.
• Allir grunnskólarnir í hverfinu hafa fengið aðgang að grenndarskógi, þ. e. Árbæjarskóli, Ártúnsskóli, Norðlingaskóli og Selásskóli.
• Leikskólinn Rauðhóll deilir grenndarskógi með Norðlingaskóla. Starfsemi Rauðhóls fer að hluta til fram í “skógarhúsið”.
• Tveir grunnskólar í Árbæ hafa hlotið Íslensku menntaverðlaunin. Þau eru veitt fyrir nýsköpun eða sérstaklega farsælt fræðslustarf. Ártúnsskóli hlaut verðlaunin árið 2006 og Norðlingaskóli árið 2009.
• Elliðaárdalurinn er eitt vinsælasta útivistarsvæði Reykvíkinga. Árbæingar eru stoltir af þessu fallega svæði.
• Fylkir rekur frábært barna- og unglingastarf í hverfinu.
• Menningarlíf í hverfinu er öflugt og nær hápunkti í menningarviku um mánaðamótin október til nóvember.
• Allir grunnskólarnir í hverfinu eru Grænfánaskólar.
• Árbæjarsundlaug er fallegt kennileiti og vinsæll sundstaður í hverfinu.
Vinsamlega sendu okkur ábendingu um fleiri stolt í Árbæ á netfangið:
arbaer-grafarholt@reykjavik.is