Ársafn - Bókasafn

Ársafn er nýjasta útibú Borgarbókasafns og opnaði það í febrúar 2004. Safnið þjónar bæði Árbæ og Grafarholti og er staðsett í Ásnum í góðu sambýli við m.a. banka, verslun, bakarí og pizzustað.
Safnkosturinn fer vaxandi, en stefnt er að því að um 30.000 eintök, bækur, tímarit, mynddiskar, íslenskir tóndiskar, hljóðbækur, tungumálanámskeið og margmiðlunarefni verði í safninu.
Öll aðstaða er til fyrirmyndar í safninu. Barnadeildin er björt og aðlaðandi, góð lestraraðstaða er fyrir gesti, tölvur eru fyrir almenning og heitur reitur. Hægt er að panta sögustundir og safnkynningar.
Nánari upplýsingar um Ársafn.