Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Starfsemi ÍTR í Grafarvogi

SMÍÐAVÖLLUR
CONSTRUCTION PLAYGROUND
CARPINTERÍA AL AIRE LIBRE
СТРОИТЕЛЬНАЯ ПЛОЩАДКА
STREFA MAJSTERKOWANIA

Smíðavöllur er opinn fyrir börn á aldrinum 8-12 ára, fædd 1998-2002. Á smíðavelli gefst börnum kostur á að smíða kofa eða annað það sem þeim dettur í hug. Ekki er boðið upp á vistun á smíðavellinum og börnunum því frjálst að koma og fara eftir þeirra hentugleika. Leiðbeinendur eru þó á staðnum á opnunartíma og aðstoða laghenta krakka við smíðarnar.
Skráningargjald á smíðavelli er 1000 kr og hefst skráning 3. maí. Opnunartími smíðavalla er breytilegur eftir borgarhlutum en upplýsingar má nálgast í hverri frístundamiðstöð eða á www.itr.is/sumar

SMÍÐAVÖLLUR (PDF 8KB).
CONSTRUCTION PLAYGROUND (PDF 8KB).
CARPINTERÍA AL AIRE LIBRE (PDF 28KB).
СТРОИТЕЛЬНАЯ ПЛОЩАДКА (PDF 37KB).
STREFA MAJSTERKOWANIA (PDF 34KB).

Frístundamiðstöðin Gufunesbær

Frístundamiðstöðin Gufunesbær var stofnuð haustið 1998 og er rekin af Íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur. Vettvangur starfsemi Gufunesbæjar er frítími allra Grafarvogsbúa, en megináherslan er lögð á barna- og unglingastarf. Mikil áhersla er lögð á að bjóða upp á fjölbreytt og áhugavert frístundastarf en Gufunesbær hefur m.a. umsjón með öllum sjö félagsmiðstöðvunum í Grafarvogi, átta frístundaheimilum við alla grunnskóla í Grafarvogi ásamt því að reka frístundaklúbb fyrir fötluð ungmenni á aldrinum 10-16 ára.

Eitt mikilvægasta markmiðið í starfi Gufunesbæjar er að stuðla að samheldni íbúanna í hverfinu og taka þátt í samstarfi og samskiptum við ýmsa aðila, bæði innan og utan hverfis. Aðstæður í “sveitinni” í Gufunesi eru mjög góðar til iðkunar útivistar. Á svæðinu er m.a. gamli bóndabærinn, hlaðan og súrheysturninn sem nýttur er til veggjaklifurs og auk þess er folfvöllur á túnunum við Gufunesbæinn og hjólabrettapallar. Nýlega var tekinn í notkun strandblakvöllur úr ekta skeljasandi.

Túnin og umhverfi Gufunesbæjar eru tilvalin til leikja og íþróttaiðkunar. Uppbygging þjónustu í frítímanum er ein af kröfum nútímans. Þar á að vera vettvangur tómstunda, menntunar, menningar og uppeldis undir handleiðslu hæfra starfsmanna.

Sjá nánar á heimasíðu Gufunesbæjar http://www.gufunes.is/

Gufunesbær, útivistarsvæði

Grafarvogslaug

Grafarvogslaug

 


v/ Dalhús
112 Reykjavík
Sími: 411 5300
Afgreiðslutími:

Mánudaga - fimmtudaga   06:30 - 22:00
Föstudaga 06:30 - 20:00
Laugardaga  10:00 - 18:00 
Sunnudaga 10:00 - 18:00

Sjá nánar á heimasíðu Grafarvogslaugar.

Ítr_grafarvogslaug


Miðgarður - Þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness, Gylfaflöt 5

Miðgarður - Þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness

Gylfaflöt 5

112 Reykjavík

Sími: 411 1400

Fax: 411 1499

midgardur@reykjavik.is

Opnunartími: 08:20-16:15.




Samverumöguleikar fjölskyldunnar í hverfunum

Sendu inn hugmynd eða ábendingu - Hverfið mitt

Framkvæmdir

Hverfislögreglan í Grafarvogi