Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Hverfisráð Grafarvogs

Hverfisráð Grafarvogs hefur aðsetur á þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness, Miðgarði, Gylfaflöt 5.

Kjörnir: Til vara:
Einar Örn Benediktsson Hákon Már Oddsson
Ingibjörg E. Guðmundsdóttir, formaður Þorsteinn V. Einarsson
Guðbrandur Guðbrandsson Arna Garðarsdóttir
Jón Karl Ólafsson Emil Örn Kristjánsson
Ingibjörg Óðinsdóttir Þórdís Pálsdóttir
Áheyrnarfulltrúi VG   
Heimir Björn Janusarson Einar Már Guðmundsson.

Um hverfisráð

Hverfisráð eru starfandi í öllum 10 hverfum borgarinnar. Hlutverk þeirra er að stuðla að hvers konar samstarfi innan hverfis, móta stefnu og gera tillögur til borgarráðs sem varða verksvið þeirra. Þá geta hverfisráð gert tillögur um samræmingu á þjónustu borgarstofnana í einstökum hverfum.

Hverfisráð eru vettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda, og eru virkir þátttakendur í allri stefnumörkun hverfanna. Þannig eru hverfisráð ráðgefandi fyrir starfsemi þjónustumiðstöðva í hverfum og eiga að stuðla að eflingu félagsauðs í hverfum.

Þá ber hverfisráðunum að stuðla að kynningu skipulags, framkvæmda og þjónustu borgarstofnana í hverfunum og beita sér fyrir því að samráð verði haft við íbúa.

Hverfisráðin eru skipuð fimm fulltrúum kosnum af borgarstjórn og jafn mörgum til vara. Borgarstjórn kýs formann úr hópi kjörinna nefndarmanna


Miðgarður - Þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness, Gylfaflöt 5

Miðgarður - Þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness

Gylfaflöt 5

112 Reykjavík

Sími: 411 1400

Fax: 411 1499

midgardur@reykjavik.is

Opnunartími: 08:20-16:15.