Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Framkvæmdir í Grafarvogi 2010

Spöngin

Hér að neðan er yfirlit yfir helstu framkvæmdir á vegum Reykjavíkurborgar í hverfinu á árinu 2010

Spöngin - Borgavegur
– Framkvæmdir við gerð hljóðveggs og hljóðmana á Borgarvegi.
– Miðað er við að framkvæmdum verði lokið í september 2010.

Áningastaður við listaverk
– Gerð áningarstaðar er í undirbúningi.
– Stefnt er að framkvæmdum á árinu.

Víkurvegur við Egilshöll
– Stefnt er að lagningu göngustígs meðfram Víkurvegi á móts við lóð Egilshallar, frá Borgarvegi að undirgöngum undir Víkurveg norðan hallarinnar.
– Stefnt er að framkvæmdum á árinu.

Umferðaröryggismál
– Gönguleiðir skólabarna, 30km hverfi og endurbætur á vástöðum. Verið er að vinna að greiningu á þörf fyrir aðgerðir ásamt forgangsröðun framkvæmda í borginni í heild á vegum Umhverfis- og samgöngusviðs.

Spöngin 43 – Menningar- og þjónustuhús
– Endurskoðuð  framkvæmdaáætlun samkvæmt breyttum forsendum gerir ráð fyrir að framkvæmdatími verði til ársloka 2013.
– Heildarflatarmál er nú um 5.100 fermetrar.
– Gert er ráð fyrir að hönnun verði lokið á árinu og framkvæmdir hafnar.

Endurbygging grunnskólalóða
– Framkvæmdir verða við lokaáfanga lóðar Foldaskóla.

Korpuskóli – viðbygging 340m2
– Viðbygging norðvestan við núverandi byggingu mun hýsa unglingadeild skólans.
– Gert er ráð fyrir að framkvæmdum verði lokið í ágúst 2011.

Trjárækt við Bryggjuhverfi og mögulega víðar í hverfinu

Verkefni sem urðu fyrir valinu í íbúakosningu
– Gróðursetning og áningarstaður á Gufunessvæði.
– Fjölgun bekkja og ruslastampa í hverfinu.
– Nestisaðstaða við útivistarstíginn í norðanverðu hverfinu.
– Drykkjarfontur við útivistarstíginn í norðanverðu hverfinu.
– Trimmtæki við Gufunesbæ og útivistarstíginn í norðanverðu hverfinu.


Miðgarður - Þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness, Gylfaflöt 5

Miðgarður - Þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness

Gylfaflöt 5

112 Reykjavík

Sími: 411 1400

Fax: 411 1499

midgardur@reykjavik.is

Opnunartími: 08:20-16:15.




Samverumöguleikar fjölskyldunnar í hverfunum

Sendu inn hugmynd eða ábendingu - Hverfið mitt

Framkvæmdir

Hverfislögreglan í Grafarvogi