Niðurstaða íbúakosningar í Grafarvogi

Netkosning um forgangsröðun fjármuna til nýframkvæmda og viðhaldsverkefna í hverfum Reykjavíkurborgar fór fram 2. – 14. desember 2009.. Kosið var um forgangsröðun framkvæmda og voru verkefni í flokknum Umhverfi og útivist sett efst í forgangsröð af íbúum í átta hverfum af tíu. Aðrir verkefnaflokkar sem valið stóð um voru Leikur og afþreying og samgöngur.
Í Grafarvogi settu íbúar verkefnaflokkinn Umhverfi og útivist efst í forgangsröðina. Eftirfarandi verkefni fara því á framkvæmdalista fyrir árið 2010 í hverfinu:
a) Gróðursetning og áningarstaður á Gufunessvæði - Verður framkvæmt í haust.
b) Fjölgun bekkja og ruslastampa í hverfinu - Verður framkvæmt í sumar.
c) Nestisaðstaða við útivistarstíg meðfram ströndinni í norðanverðu Grafarvogshverfi - Verður framkvæmt í sumar.
d) Drykkjarfontur við útivistarstíginn meðfram ströndinni í norðanverðu Grafarvogshverfi - Verður framkvæmt í sumar.
e) Trimmtæki við Gufunesbæ og við útivistarstíginn meðfram ströndinni í norðanverðu Grafarvogshverfi. - Verður framkvæmt í sumar.