Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Þjónustumiðstöð Breiðholts

Þjónustumiðstöðin

Álfabakka 12 109 Reykjavík

Sími: 411 1300 Fax: 411 1399

Netfang: breidholt@reykjavik.is

Þjónustumiðstöðin er opin alla virka daga frá 8:30 - 16:00

Í Þjónustumiðstöð Breiðholts er alhliða upplýsingamiðlun um þjónustu borgarinnar. Þar er hægt að sækja um ýmis konar þjónustu svo sem leikskólapláss, fjárhagsaðstoð, húsaleigubætur og heimaþjónustu. Í þjónustumiðstöðinni er veitt félagsleg ráðgjöf, sálfræði- og kennsluráðgjöf vegna leik- og grunnskólabarna, ýmis konar frítímaþjónusta og fleira.

Markmiðið með stofnun þjónustumiðstöðvanna er að gera þjónustu borgarinnar aðgengilegri fyrir íbúa og efla þverfaglegt samstarf sérfræðinga í málefnum barna og fjölskyldna og auka þannig lífsgæðin í höfuðborginni. Jafnframt leggja þjónustumiðstöðvarnar mikla áherslu á að styrkja hvers kyns hverfastarf í samvinnu við íbúa, félagasamtök og aðra þá sem vilja láta til sín taka.

Framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Breiðholts er, tímabundið, Þóra Kemp, félagsráðgjafi og deildarstjóri. Hákon Sigursteinsson, sálfræðingur, er deildarstjóri sérfræðiþjónustu leikskóla og grunnskóla í Breiðholti.

Helsta þjónusta í boði er:
• Alhliða upplýsingamiðlun 411-1300
Daggæsla í heimahúsum.
Félagsleg ráðgjöf.
Fjárhagsaðstoð.
Íþróttir og frístundastarf. 
Heimaþjónusta.
Húsaleigubætur.
Húsnæði. 
Hverfastarf.
• Sálfræðiþjónusta.
Sérfræðiþjónusta leik- og grunnskóla.
Stuðningsþjónusta
• Ýmis annar stuðningur.

Sjá Upplýsingahandbók Þjónustumiðstöðvar Breiðholts  með helstu upplýsingum um hlutverk, meginmarkmið, starfsstöðvar, þjónustu í boði og verksvið starfsfólks.

Starfsstaðir Þjónustumiðstöðvar Breiðholts.

skrifstofa

Aðalskrifstofan er í Álfabakka 12. Þjónustu- og upplýsingaskálinn er opinn milli kl 8:30 og 16:00.
Í Álfabakkanum starfa að jafnaði 40 manns í þverfaglegu samstarfi. Helstu fagstéttir eru:
sálfræðingar, félagsráðgjafar, kennsluráðgjafar, sérkennsluráðgjafar, daggæsluráðgjafi, frístundaráðgjafi, matsfulltrúar, þjónustufulltrúar, verkefnastjóri stuðningsþjónustu og stjórnendur.

Félagsmiðstöðin Árskógum 4 félagsstarf fer meðal annars fram í opnum vinnustofum og með námskeiðum. Opið frá kl. 9:00-16:30. Einnig er starfrækt baðþjónusta og akstursþjónusta, tölvur til reiðu og dagblöð liggja frammi fyrir gesti. Frjáls aðgangur er að opnum rýmum til spilamennsku og til hópa- og klúbbastarfs. Deildarstjóri er Elsa S. Haraldsdóttir.

Félagsstarfið Gerðubergi 3-5, félagsstarf fer meðal annars fram í opnum vinnustofum og með námskeiðum. Opið frá kl. 9:00-16:30. Tölvur til reiðu og dagblöð liggja frammi fyrir gesti. Frjáls aðgangur er að opnum rýmum til spilamennsku og til hópa- og klúbbastarfs. Deildarstjóri er Guðrún Jónsdóttir. 

Félagsleg heimaþjónusta Árskógum 4. Félagsleg heimaþjónusta er fyrir þá sem búa í heimahúsum og geta ekki án aðstoðar séð um almenn þrif, heimilishald og ADL athafnir daglegs lífs vegna skertrar getu, veikinda eða fötlunar.Þjónustan skiptist í eftirfarandi þætti þ.e. almenn þrif, heimilishald, félagslegan stuðning og aðstoð við ADL athafnir daglegs lífs. Þjónustan er fyrir alla aldurshópa. Almenn þjónusta er veitt á daginn en einnig er hægt er að sækja um innlit eða styttri viðveru. Félagsleg heimaþjónusta er gjaldskyld. Teymisstjórar eru Elísabet E Jónsdóttir og Guðbjörg Vignisdóttir.Starfsmenn eru um 30.

Skólaselið Keilufelli 5. Starfsemi Skólaselsins byggist á samningi sem Menntasvið, Velferðarsviðs og ÍTR hafa gert um lausnamiðaða nemendavernd fyrir grunnskólanemendur í Árbæ, Breiðholti og Grafarholti. Samningurinn er gerður með fullu samþykki grunnskóla í umræddum hverfum, Þjónustumiðstöðvar Breiðholts, Þjónustumiðstöðvar Árbæjar og Grafarholts, Frístundamiðstöðvarinnar Miðbergs og Barnaverndar Reykjavíkur. Leitast er við að finna lausn á vanda nemenda sem skólunum hefur ekki tekist í samráði við forráðamenn og viðkomandi þjónustumiðstöð. Einkum er um að ræða nemendur sem glíma við mikla hegðunar- og tilfinningalega erfiðleika. Forstöðumaður er Margrét Sæberg Sigurðardóttir.

Stuðninurinn heim, uppeldisráðgjöfHraunbergi 15, 111 Reykjavík sinnir uppeldisráðgjöf heim til foreldra. Markmiðið starfseminnar er að leiðbeina fjölskyldum í vanda við uppeldi og umönnun barna sinna og styrkja þær í foreldrahlutverkinu. Þjónustan er veitt inn á heimili fjölskyldunnar í 6-8 vikur. Forstöðumaður er Aðalbjörg Valberg.

Unglingasmiðjan Tröð í Keilufelli 5 og Unglingasmiðjan Stígur Amtmannsstíg 5a 
eru stuðningsúrræði á vegum Þjónustumiðstöðvar Breiðholts. Starfsemi unglingasmiðjanna er ætluð unglingum sem eiga erfitt uppdráttar félagslega. Leitast er við að efla sjálfstraust og jákvæða sjálfsmynd unglinganna, styðja þá í leit að uppbyggilegum lausnum og samskiptum og draga úr félagslegri einangrun. Forstöðumaður er Heiða Ösp Kristjánsdóttir.

REYKJAVÍK CITY SERVICE CENTER IN BREIÐHOLT

Welcome
Reykjavík city service centers provide information on all municipal service in Reykjavík. There you can apply for diverse services such as preschool, social allowance and financial advice, rent benefit and domestic help. The city service centers also provide social counseling, psychological and academic counseling for preschool and school children, diverse leisure opportunities and much more. The objective of the city service center is to make all the City services more accessible for residents and to enable the cross sectoral cooperation between specialists working with children and families thus increasing the quality of life in Reykjavík. Furthermore the city service centers will emphasize on strengthening all kinds of local activities and sport in Breiðholt in cooperation with its residents, non-governmental/non-profit organisations and others who want to participate.

What services do we provide?
• General information
• Home based day care
• Pre school applications
• Social counseling
• Financial aid and social benefit
• Leisure activities and social work
• Domestic help
• Local activities in Breiðholt
• Rent benefit
• Housing
• Academic specialist service
• Other diverse support