Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Breiðholt

Hólar, Fell, Berg, Sel, Skógar, Bakkar, Stekkir og Mjódd.

Breiðholt

Breiðholt dregur nafn sitt af bænum Breiðholti. Bærinn stóð áður á svipuðum slóðum og Skógarsel stendur nú.  Hverfið markast af Reykjanesbraut, Elliðaám (syðri kvísl) og sveitarfélaginu Kópavogi. Einstakir hlutar hverfisins eru Efra-Breiðholt (Fell, Berg og Hólar), Neðra-Breiðholt (Bakkar og Stekkir) og Seljahverfi.

Breiðholt er fjölmennasta hverfi Reykjavíkurborgar með ríflega 20.600 íbúa á 7.678 heimilum. Af þeim er hátt hlutfall erlendra ríkisborgara eða 10,2% miðað við ríflega 8% að meðaltali í Reykjavík. Stærsti einstaki hópurinn eru Pólverjar. Aldursskiptingu íbúa svipar til meðaltals aldurskiptingar borgarbúa í borginni allri.

Breiðholt einkennist af öflugu hverfastarfi með áherslu á samskipti kynslóðanna. Hverfastarfið nær hápunkti á svokölluðum Breiðholtsdögum ár hvert. Breiðholt státar einnig af öflugu skóla- og íþróttastarfi, menningarmiðstöðinni Gerðubergi og verslunarmiðstöðinni Mjódd svo sitthvað sé nefnt.

Reykjavíkurborg rekur víðtækja þjónustu í hverfinu, meðal annars í gegnum Þjónustumiðstöð Breiðholts í Mjódd.