Framkvæmdir í Breiðholti 2010

Hér að neðan er yfirlit yfir helstu framkvæmdir á vegum Reykjavíkurborgar í hverfinu á árinu 2010
Breiðholtsskóli - brunavarnir
- Unnið verður samkvæmt verkáætlun eftir brunatæknilega úttekt á skólanum.
Seljaskóli - brunavarnir
– Stofnlagnir fyrir vatnsúðakerfi frá nýju tæknirými í kjallara.
Framkvæmdir við lóð Fellaskóla.
Nýtt boltagerði við Ölduselsskóla.
Austurberg 1 – Lóðarframkvæmd við félagshús Leiknis.
Seljahlíð - endurskipulagning
– Unnið verður áfram við breytingar á starfsmannarýmum og íbúðum í Seljahlíð.
Gerð leiksvæðis við Lambsel.
Verkefni sem urðu fyrir valinu í íbúakosningu
– Trimmtæki við Steinasel-Holtasel og Suðurfell.
– Nestisaðstaða við Elliðaárdal-Fell og Steinasel-Holtasel.
– Fjölga bekkjum og ruslastömpum í hverfinu.
– Gróðursetning í hverfinu í samráði við hverfisráð.
Umferðaröryggismál
– Gönguleiðir skólabarna, 30km hverfi og endurbætur á vástöðum. Verið er að vinna að greiningu á þörf fyrir aðgerðir ásamt forgangsröðun framkvæmda í borginni í heild á vegum Umhverfis- og samgöngusviðs.