Niðurstaða íbúakosningar í Breiðholti

Netkosning um forgangsröðun fjármuna til nýframkvæmda og viðhaldsverkefna í hverfum Reykjavíkurborgar fór fram 2. – 14. desember 2009.. Kosið var um forgangsröðun framkvæmda og voru verkefni í flokknum Umhverfi og útivist sett efst í forgangsröð af íbúum í átta hverfum af tíu. Aðrir verkefnaflokkar sem valið stóð um voru Leikur og afþreying og samgöngur.
Í Breiðholti settu íbúar verkefnaflokkinn Umhverfi og útivist efst í forgangsröðina. Eftirfarandi verkefni fara því á framkvæmdalista fyrir árið 2010 í hverfinu:
a) Nestisaðstaða við Elliðaárdal – Fell - Verður framkvæmt í sumar.
b) Nestisaðstaða við Steinasel-Holtasel - Verður framkvæmt í sumar.
c) Trimmtæki við Steinasel-Holtasel - Verður framkvæmt í sumar.
d) Trimmtæki við Suðurfell - Verður framkvæmt í sumar.
e) Fjölga bekkjum og ruslastömpum í hverfinu - Verður framkvæmt í sumar.
f) Gróður og gróðursetning í hverfinu í samráði við hverfisráð - Verður framkvæmt í haust.