Fréttir
Félagsmiðstöðin Vitatorg kynnir dagskrá félagsstarfsins fyrir veturinn 2011-2012. Um er að ræða fjölbreytta og áhugaverða dagskrá og eru allir hvattir til að kynna sér hana nánar.
Reykjavíkurborg óskar nú eftir hugmyndum á vefnum Betri Reykjavík til eflingar og fegrunar í hverfum Reykjavíkur. Sett hefur verið upp undirsíða á Betri Reykjavík sem nefnist Betri hverfi. Þar geta íbúar sett inn hugmyndir að smærri nýframkvæmdum og viðhaldsverkefnum í hverfunum og stutt hugmyndir annarra eða hafnað þeim.
Þriðjudaginn 25.október kl. 10.55-12.00 kynnir vefstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar Hildur Björg Hafsteins vef Tryggingamiðstöðvarinnar. Allir velkomnir Félagsmiðtöðin Vesturgata 7