Framkvæmdir í Miðborg 2010

Hér að neðan er yfirlit yfir helstu framkvæmdir á vegum Reykjavíkurborgar í hverfinu á árinu 2010
Tjarnarbíó
– Unnið er að endurbótum á núverandi byggingu ásamt viðbyggingu í porti milli Suðurgötu og Tjarnargötu.
– Áætlað er að framkvæmdum ljúki vorið 2010.
Laugavegur 4 og 6 - Völundarverk
– Endurgerð á húsum og lóðaframkvæmdir.
– Áætlað er að verkinu ljúki á árinu.
Lækjargata 2 og Austurstræti 22
– Endurgerð á húsinu Lækjargötu 2 á vegum Völundarverks.
– Uppsteypa á Nýja Bíói og endurgerð Austurstrætis 22.
– Miðað er við að verkinu ljúki á árinu.
Framkvæmdir í tengslum við Tónlistar- og ráðstefnuhúsið (Harpa)
– Framkvæmdir við breytingar á Sæbraut á móts við Tónlistar- og ráðstefnuhúsið, gönguleiðir, ræktun og frágangur.
– Framkvæmdir eru áætlaðar á árunum 2010-2011.
Skuggahverfi
– Framkvæmdir við götur og gangstéttir við Lindargötu, Vatnsstíg og Skúlagötu.
– Framkvæmdum lýkur um mitt sumar 2010.
Nauthólsvegur
– Framkvæmdir á milli Hringbrautar og Flugvallarvegar ásamt tengingum við aðliggjandi götur.
– Árið 2010 verður einkum unnið við frágang, ræktun og gerð gönguleiða.
Háskólinn í Reykjavík
– Unnið verður að lokafrágangi bílastæða og gönguleiða ásamt þakningu, sáningu og gróðursetningu.
Umferðaröryggismál
– Gönguleiðir skólabarna, 30km hverfi og endurbætur á vástöðum. Verið er að vinna að greiningu á þörf fyrir aðgerðir ásamt forgangsröðun framkvæmda í borginni í heild á vegum Umhverfis- og samgöngusviðs.
Verkefni sem urðu fyrir valinu í íbúakosningu
– Endurbætur á torginu á mótum Nönnugötu, Óðinsgötu og Baldursgötu með því að fækka bílastæðum og einnig með gróðursetningu, blómakerjum, bekkjum og ruslastömpum.
– Nestisaðstaða í Hallargarði.