Niðurstaða íbúakosningar í Miðborg

Netkosning um forgangsröðun fjármuna til nýframkvæmda og viðhaldsverkefna í hverfum Reykjavíkurborgar fór fram 2. – 14. desember 2009.. Kosið var um forgangsröðun framkvæmda og voru verkefni í flokknum Umhverfi og útivist sett efst í forgangsröð af íbúum í átta hverfum af tíu. Aðrir verkefnaflokkar sem valið stóð um voru Leikur og afþreying og samgöngur.
Í Miðborginni settu íbúar verkefnaflokkinn Umhverfi og útivist efst í forgangsröðina. Eftirfarandi verkefni fara því á framkvæmdalista fyrir árið 2010 í hverfinu:
a) Torg á mótum Óðinsgötu, Nönnugötu og Baldursgötu gert vistlegt (fækka bílastæðum með t.d gróðursetningu, blómakerum, bekkjum og ruslastömpum) - Verður framkvæmt í haust.
b) Nestisaðstaða í Hallargarði - Verður framkvæmt í sumar.