Stolt miðborgarinnar

Hvert einasta hverfi borgarinnar allt frá Vesturbæ norður á Kjalarnes er ómissandi þáttur í heildarmynd Reykjavíkur. Öll búa hverfin yfir ákveðinni sérstöðu og státa af Stoltum í mannlífi, umhverfi og aðstæðum, samanber listann að neðan yfir stolt Miðborgar.
• Menningarnótt og þátttaka opinberra stofnana og íbúa í dagskránni, t.a.m. með því að bjóða heim í vöfflur o.fl.
• Haðarstígur, fyrsta vistgatan í Reykjavík 2009.
• Götuleikhús í Miðborginni á sumrin.
• Verndun gamalla húsa í Miðborginni.
• Árlegur kjötsúpulaugardagur á Skólavörðustíg.
• Safnanótt í febrúar.
• Hönnunarmars í mars sl. tvö ár.
• Stofnun Íbúasamtaka Miðborgar vorið 2008.
• Hreinsunarátak gegn „graffiti“ við Laugaveg vorið 2008.
• Uppbygging torga eins og Bríetartorgs.
• Fjölmenningarstarf í Borgarbókasafni.
• Leikskólinn Laufásborg hefur hlotið Grænfánann.
• Árleg Hverfahátíð Miðborgar og Hlíða á Klambratúni.
• Ungmennaráð Miðborgar og Hlíða hefur fengið styrk til þess að gera kennslumyndband um einelti.
• Handverkssýning og kynningardagar á starfsemi félagsmiðstöðva í Miðborg og Hlíðum í Ráðhúsi Reykjavíkur 11. – 14. maí 2010 nk.
Vinsamlega sendu okkur ábendingu um fleiri stolt í Miðborginni á netfangið: midborg.hlidar@reykjavik.is