Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða

Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða, Skúlagötu 21
Sími: 411 1600 Fax: 411 1699
Netfang: midborg.hlidar@reykjavik.is
Þjónustumiðstöðin er opin alla virka daga frá kl. 8:30 – 16:00
Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða er ein af sex þjónustumiðstöðvum í Reykjavík. Við þjónustumiðstöðina starfa um 260 manns. Framkvæmdastjóri er Sigtryggur Jónsson.
Hverfisráð Miðborgar og Hverfisráð Hlíða halda fundi sína í þjónustumiðstöðinni.
Hlutverk þjónustumiðstöðvarinnar er að veita þverfaglega og samræmda þjónustu til íbúa í Miðborg og Hlíðum um persónuleg málefni, ráðgjöf við starfsfólk leik- og grunnskóla og aðra faglega þjónustu til stofnana og félagasamtaka í hverfunum. Þjónustumiðstöðin er þekkingarstöð í fjölmenningu og margbreytileika og hefur á að skipa starfsfólki, sem er sérhæft í málefnum útlendinga og minnihlutahópa.
Með þverfaglegri og samræmdri þjónustu vonumst við til að geta veitt íbúum Miðborgar og Hlíða góða og markvissa þjónustu. Á þjónustumiðstöðinni er mikil áhersla lögð á öflugt samstarf við aðrar stofnanir og félagasamtök í hverfunum. Má þar nefna grunn- og leikskóla, félagsmiðstöðvar, lögreglu, íþróttafélög og kirkjur svo eitthvað sé nefnt.