Dagforeldrar

Skólasvið Reykjavíkur veitir starfsleyfi til dagforeldra og sinnir lögbundnu eftirliti með þeirri starfsemi eins og kveðið er á um í reglugerð Félagsmálaráðuneytisins nr. 907 frá 5. október 2005. Eftirlit með dagforeldrum felst í reglubundnum heimsóknum, a.m.k. þrisvar á ári samkvæmt reglugerð.
Athygli er vakin á því að þrátt fyrir reglubundið eftirlit með starfsemi dagforeldra hafa foreldrar yfirleitt besta aðstöðu til að fylgjast með starfsemi þeirra þar sem þeir eru í daglegu sambandi við þá. Ef óánægja kemur upp hjá foreldrum með umönnun eða aðbúnað barns eru þeir hvattir til að taka málið upp við dagforeldrið. Ef það ber ekki árangur er hægt að hafa samband við daggæsluráðgjafa á þjónustumiðstöð og leita eftir ráðgjöf eða leggja fram kvörtun.
Það skal tekið fram að dagforeldrar eru sjálfstætt starfandi og ákvarða sína gjaldskrá sjálfir. Margir dagforeldrar gera skriflegan vistunarsamning við foreldra þar sem kveðið er á um ýmis atriði varðandi starfsemina. Dagforeldrar verða að vera tryggðir og ákveða þeir sjálfir hvar þeir tryggja sig. Hagsmunafélög dagforeldra eru: Barnið(félag dagforeldra í Reykjavík), Barnavistun(félag dagforeldra), einnig eru hagsmunafélög dagforeldra í Kópavogi og Hafnarfirði.
Starfandi dagforeldrar á þjónustusvæði Miðborgar
Anna Katharina Blocher - Fullt
Heimili: Njálsgata 52b. Hafa samband í gegnum http://www.daycare.is
Eva-Charlotte Hansel og Ana Djurovic - Fullt
Heimili: Njálsgata 52c Hafa samband í gegnum http://www.daycare.is
Helga Nína Heimisdóttir - Fullt
Heimili: Baldursgata 24, 101 Rvk - Sími: 562 8927- Vinnutími: 08:00-16:00.
Ólöf Þóra Sverrisdóttir og Helena Hansdóttir - Fullt
Heimili: Freyjugöturóló / Freyjugata 19, 101 R. – Sími: 659-1139 (Ólöf) og 842-5642 (Helena). Vinnutími: 08:45-16:15.
Sveindís Ýr Sveinsdóttir - Fullt
Heimili: Njálsgata 12, 101 R. - Hafa samband í gegnum: disadagmamma@gmail.com
Vinnutími: 08:00-17:00.
Uppfært 10. janúar 2012