Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Hverfisráð Miðborgar

Hverfisráð Miðborgar hefur aðsetur á Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða, Skúlagötu 21.

Kosin eru af DSÆ lista án atkvæðagreiðslu 15. júní 2010:

Kjörnir: Til vara:
Óttar Ólafur Proppé, formaður Hugleikur Dagsson
Daði Ingólfsson Ágúst Már Garðarsson
Kristín Soffía Jónsdóttir Hjálmar Sveinsson
Áslaug María Friðriksdóttir Kári Sölmundarson
Árni Helgason Matthildur Skúladóttir
Áheyrnarfulltrúi VG   
 Vésteinn Valgarðsson Þorbjörg Eva Erlendsdóttir

 

.


Um hverfisráð

Hverfisráð eru starfandi í öllum 10 hverfum borgarinnar. Hlutverk þeirra er að stuðla að hvers konar samstarfi innan hverfis, móta stefnu og gera tillögur til borgarráðs sem varða verksvið þeirra. Þá geta hverfisráð gert tillögur um samræmingu á þjónustu borgarstofnana í einstökum hverfum.

Hverfisráð eru vettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda, og eru virkir þátttakendur í allri stefnumörkun hverfanna. Þannig eru hverfisráð ráðgefandi fyrir starfsemi þjónustumiðstöðva í hverfum og eiga að stuðla að eflingu félagsauðs í hverfum.

Þá ber hverfisráðunum að stuðla að kynningu skipulags, framkvæmda og þjónustu borgarstofnana í hverfunum og beita sér fyrir því að samráð verði haft við íbúa.

Hverfisráðin eru skipuð fimm fulltrúum kosnum af borgarstjórn og jafn mörgum til vara. Borgarstjórn kýs formann úr hópi kjörinna nefndarmanna


Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða

Þjónustumiðstöð

Miðborgar og Hlíða
Skúlagötu 21
101 Reykjavík
Sími: 411 1600
Fax: 411 1699
midborg.hlidar@reykjavik.is
Opnunartími: 08:30-16:00