Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Laugardalur

Tún, Teigar, Lækir, Laugarnes, Sund, Heimar, Langholt, Vogar, Skeifan og Fen.

Laugardalur

Laugardalur felur í sér nokkra minni hverfishluta, Tún, Teiga, Læki, Sund, Heima, Fen, Langholt, Laugarnes og Skeifu. Hverfið felur mestmegnis í sér blandaða íbúabyggð ásamt atvinnuhúsnæði á afmörkuðum svæðum.

Hverfið taldi ríflega 15.200 íbúa um síðustu áramót. Af þeim er hátt hlutfall 67 ára og eldri eða 17% íbúa miðað við ríflega 10% að meðaltali í borginni allri. Í hverfinu er einnig hátt hlutfall skólabarna eða um 8% íbúa miðað við að meðaltali 6,7% íbúa í borginni allri.

Laugardalsbúar státa meðal annars af Laugardalslaug, Skautahölllinni, Grasagarðinum, Fjölskyldu- og húsdýragarðinum,  Safni Sigurjóns Ólafssonar á Laugarnestanga og Sólheimabókasafni auk fjölda annarra stofnana og fyrirtækja.

Reykjavíkurborg rekur víðtæka þjónustu í hverfinu, meðal annars í gegnum Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis að Síðumúla 39.