Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Þjónustumiðstöð Laugardals, Háaleitis og Bústaða

Leikskólabörn

Þjónustumiðstöð Laugardals, Háaleitis og Bústaða 

Síðumúla 39, 108 Reykjavík
Sími: 411-1500
Fax: 411-1599
Netfang: laugardalur.haaleiti@reykjavik.is

Þjónustumiðstöðin er opin alla virka daga frá kl. 8:30-16:00

Þjónustumiðstöðvar eru í sex hverfum borgarinnar og sinna þjónustu við einstaklinga og fjölskyldur, sérfræðiþjónustu við leik- og grunnskóla, frístundaráðgjöf auk almennrar upplýsingagjafar um starfsemi Reykjavíkurborgar. Þær bera ábyrgð á framkvæmd forvarnarstefnu Reykjavíkurborgar og þar fer fram faglegt samstarf með áherslu á samþætta þjónustu

Við þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis starfa yfir 300 einstaklingar. Framkvæmdastjóri er Aðalbjörg Traustadóttir. Deildarstjóri félagsþjónustudeildar er Kristjana Gunnarsdóttir. Deildarstjóri sérfræðiþjónustu skóla er Helgi Hjartarson og deildarstjóri stuðningsþjónustudeildar er Þórdís L. Guðmundsdóttir.

Starfsstöðvar Þjónustumiðstöðvarinnar eru 

  • Síðumúli 39, vettvangsgeðteymi
  • Dalbraut 21-27, Þjónustuíbúðir, félagsstarf, heima- og stuðningsþjónusta
  • Dalbraut 18-20 ,FélagsmiðstöðNorðurbrún 1, Þjónustuíbúðir, félagsstarf, heimaþjónusta
  • Furugerði 1, Þjónustuíbúðir, félagsstarf.
  • Hvassaleiti 56-58, Félagsmiðstöð, heima- og stuðningsþjónusta B í hverfinu
  • Hæðargarður 31, Félagsmiðstöð og aðsetur heimaþjónustu A í hverfinu
  • Sléttuvegur 11, Félagsmiðstöð
  • Sléttuvegur 3, 7 og 9, heimþjónusta
  • Fjölskylduheimilið Búðargerði
  • Gunnarsbraut 51, Búsetuþjónusta fyrir geðfatlaða.
  • Dalbraut 23, búsetukjarni fyrir geðfatlaða
  • Austurbrún 6, búsetukjarni fyrir geðfatlaða
  • Skúlagata 70 og 74, búsetukjarni fyrir geðfatlaða
  • Sléttuvegur 9, búsetukjarni fyrir geðfatlaða
  • Hverfisgata 125, búsetukjarni fyrir geðfatlaða
  • Búðargerði 9, fjölskylduheimili
  • Grundarland 17, sambýli
  • Sogarvegur 108, sambýli
  • Vesturbrún 17, sambýli
  • Hólmasund 2, sambýli
  • Sólheimar 21b, sambýli
  • Bleikargróf 4, sambýli
  • Drekavogi 16, áfangastaður
  • Hátún 6, áfangastaður
  • Byggðarendi 6, áfangastaður 

 Starfsstöðvarnar sinna ýmis konar þjónustu, meðal annars félagsstarfi, rekstri þjónustuíbúða, heima- og stuðningsþjónustu.

Þjónustumiðstöðin rekur auk þessara starfsstöðva, búsetukjarna fyrir geðfatlaða, en þeir kjarnar eru liður í átaki Félagsmálaráðuneytis um uppbyggingu búsetuúrræða fyrir geðfatlaða (Straumhvarfaverkefni).

Starfsmenn þjónustumiðstöðvar Laugardals, Háaleitis og Bústaða sinna sérstaklega tveimur þekkingarmiðstöðvarverkefnum undir kjörorðinu: „Samfélag fyrir alla”. Verkefnin miðast að eldri borgurum og fötluðum einstaklingum.