Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Hverfisráð Laugardals

Hverfisráð Laugardals hefur aðsetur á Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis, Síðumúla 39.

Kosin eru af DSÆ lista án atkvæðagreiðslu 15. júní 2010:

Kjörnir: Til vara:
Inga María Leifsdóttir Ingibjörg Helga Arnardóttir
Heiðar Ingi Svansson, formaður Eva Einarsdóttir
Jórunn Frímannsdóttir Bjarni Jónsson
Leifur Björnsson Halldór Gunnarsson (frá 1.3.'11)
Halldór Guðmundsson Ingvar Garðarsson
Áheyrnarfulltrúi VG   
Kristín Þorleifsdóttir Sjöfn Ingólfsdóttir.



 

Um hverfisráð

Hverfisráð eru starfandi í öllum 10 hverfum borgarinnar. Hlutverk þeirra er að stuðla að hvers konar samstarfi innan hverfis, móta stefnu og gera tillögur til borgarráðs sem varða verksvið þeirra. Þá geta hverfisráð gert tillögur um samræmingu á þjónustu borgarstofnana í einstökum hverfum.

Hverfisráð eru vettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda, og eru virkir þátttakendur í allri stefnumörkun hverfanna. Þannig eru hverfisráð ráðgefandi fyrir starfsemi þjónustumiðstöðva í hverfum og eiga að stuðla að eflingu félagsauðs í hverfum.

Þá ber hverfisráðunum að stuðla að kynningu skipulags, framkvæmda og þjónustu borgarstofnana í hverfunum og beita sér fyrir því að samráð verði haft við íbúa.

Hverfisráðin eru skipuð fimm fulltrúum kosnum af borgarstjórn og jafn mörgum til vara. Borgarstjórn kýs formann úr hópi kjörinna nefndarmanna


Þjónustumiðstöð Laugardals, Háaleitis og Bústaða

Þjónustumiðstöð Laugardals, Háaleitis og Bústaða
Síðumúla 39
108 Reykjavík
Sími: 411 1500
Fax: 411 1599
laugardalur.haaleiti@reykjavik.is
Opnunartími: 08:30-16:00