Stolt Laugardals

Hvert einasta hverfi borgarinnar allt frá Vesturbæ norður á Kjalarnes er ómissandi þáttur í heildarmynd Reykjavíkur. Öll búa hverfin yfir ákveðinni sérstöðu og státa af Stoltum í mannlífi, umhverfi og aðstæðum, samanber listann að neðan yfir stolt Laugardals.
Stolt grunnskólanna
Laugarnesskóli
2006 Opnunarhátíð v/nýrrar skólabyggingar.
2006 75 ára afmælishátíð.
2008 Íslenskuverðlaun Menntaráðs fyrir verkefnið Tár úr steini, Steinn Steinarr, verkefni 6.bekkjar árgangs.
2007 Hvatningarverðlaun Menntaráðs v/fjölmenningar, framfarir erlendra nemenda í íslensku.
2007 Hvatningarverðlaun Menntaráðs fyrir Þróunarverkefnið Katlagil.
2008 Hvatningarverðlaun Menntaráðs v/kennsluhátta í heimilisfræði, útikennsla/útieldhús.
2007 Menntaverðlaun forseta Íslands til kennara v/Perluvinaverkefnis
Vogaskóli
2009 Haldið upp á 50 ára afmæli skólans.
2009 Hvatningarverðlaun Menntaráðs fyrir verkefnið Jafnréttisfræðsla í leik- og grunnskólum.
2008 Tekin í notkun ný skólalóð og viðbygging.
Laugalækjarskóli
2010 Haldið upp á 50 ára afmæli skólans.
2009 Ný og endurgerð skólalóð, fyrri hluti tekinn í notkun.
2008 Hvatningarverðlaun Menntaráðs fyrir þverfaglegt verkefni 10. bekkjar.
2009 1. sæti í Skrekk.
2008 2. sæti í Skrekk.
Langholtsskóli
2007 Grænfáni.
2009 Grænfáni.
2008-2009
Skólalóðin endurgerð, er vinnslu.
2009 Notkun útikennslustofu hafin.
2007 1. sæti í Skrekk.
Stolt leikskólanna
2009 Leikskólarnir Laugaborg og Sunnuborg fengu hvatningarverðlaun leikskóla Reykjavíkur fyrir sameiginlegt þróunarverkefni Leikið og lært í Laugardal.
2008 Leikskólinn Hof fékk hvatningarverðlaun leikskóla Reykjavíkur fyrir verkefnið Dans-Hreyfing-Tónlist.
2007 Leikskólinn Steinahlíð fékk hvatningarverðlaun leikskóla Reykjavíkur fyrir umhverfisverkefnið Í túninu heima.
Stolt Íbúasamtaka Laugardals
Samfélagslistaverkið Guttormur, vígt 5. júní 2009.
Listaverkið er samstarfsverkefni Íbúasamtaka Laugardals (Í.L.) og skólanna í hverfunum umhverfis Laugardalinn, Voga-, Langholts- og Laugalækjarskóla. Verkið var unnið af ríflega 20 unglingum undir leiðsögn myndlistarkvennanna Ólafar Nordal og Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur og Kristínar Þorleifsdóttur, landslagsarkitekts og formanns íbúasamtakanna.
Verkið er gert til heiðurs nautinu fræga, Guttormi, sem lengi bjó í Húsdýragarðinum og öðlast hefur sess í hugum íbúa Laugardalshverfanna sem tákn hins vingjarnlega granna en nautið prýðir m.a. merki íbúasamtakanna. Markmið verkefnisins er að efla samskipti íbúa á jákvæðum nótum og skapa skemmtilegan hverfisbrag.
Stolt á Þjónustumiðstöð
• Fjölskylduteymið í Glæsibæ, þverfaglegt samstarf heilsugæslunnar í Glæsibæ, Barna- og unglingageðdeildar og þjónustumiðstöðvarinnar um málefni barna með hegðunar- og geðraskanir. Markmið teymisins er að samhæfa úrræði fyrir börn með hegðunar- og geðraskanir og fjölskyldur þeirra.
• Átak, samvinnuverkefni þjónustumiðstöðvar, heimilis og skóla um stuðning við foreldrahlutverkið, bætta skólasókn og ástundun nemenda. Öflugur tímabundinn stuðningur við fjölskyldur.
• Skipulagðar heimsóknir til eldri borgara. Skipulagðar heimsóknir felast í því að íbúum hverfisins 80 ára og eldri sem búa á eigin heimili og njóta hvorki heimahjúkrunar né heimaþjónustu er boðið upp á heimsókn félagsráðgjafa. Þessar heimsóknir eru hugsaðar sem liður í forvörnum fyrir eldri borgara. Lögð er áhersla á að veita ráðgjöf og upplýsingar um þá þjónustu sem í boði er og koma á tengslum milli eldri borgara og fagaðila í öldrunarþjónustu. Markmið með heimsókninni er að auka öryggiskennd íbúa og stuðla að því að viðkomandi fái nauðsynlega þjónustu til að viðhalda heilbrigði og sjálfstæði.
• Samvinna við Svæðisskrifstofu Reykjavíkur vegna frekari liðveislu, markmið með samvinnunni er að veita heildstæðan stuðning til fatlaðra íbúa í Hátúni og nágrenni sem þurfa samþætta þjónustu frá ríki og borg til að tryggja fötluðum jafnrétti og sambærileg lífskjör við aðra þjóðfélagsþegna og skapa þeim skilyrði til þess að lifa eðlilegu lífi sbr. 1. mgr. 1. gr. laga um málefni fatlaðra nr. 59/1992.
• Virkni til Velferðar, verkefni sem hefur það markmið að stuðla að aukinni virkni einstaklinga í atvinnuleit. Tilgangur verkefnisins er að ná sem fyrst til einstaklinga sem leita eftir fjárhagsaðstoð og veita upplýsingar og ráðgjöf um þann stuðning og úrræði sem standa viðkomandi til boða.
Vinsamlega sendu okkur ábendingu um fleiri stolt í Laugardal á netfangið: laugardalur.haaleiti@reykjavik.is