Álfaland 6

Skammtímavistun fyrir fötluð börn - Álfalandi 6
Forstöðuþroskaþjálfi: Margrét Lísa Steingrímsdóttir
Sími 553-2766
Skammtímavistun í Álfalandi 6 hefur verið starfrækt frá árinu 1987, og er markmiðið að veita foreldrum og/eða forráðamönnum fatlaðra barna skammtímavistun til að létta á heimilum og gefa fólki kost á að komast í frí. Skammtímavistunin er um leið afþreying og tilbreyting fyrir börnin, því í Álfaland 6 er lítið hús með stórum og skjólgóðum garði þar sem börnin geta bæði leikið sér innandyra sem utan. Börnin fara frá Álfalandi í sín dagstilboð, eins og þau gera þegar þau eru heima. Um helgar er ýmislegt gert til afþreyingar en allt fer það eftir aðstæðum hverju sinni, því börnin eru mjög ólík og misjöfn að getu.
Sótt er um skammtímavistun fyrir fötluð börn hjá félagsráðgjafa/ráðgjafa á þjónustumiðstöð í því hverfi sem barnið býr.