Félagsleg heimaþjónusta
Félagsleg heimaþjónusta er fyrir þá sem búa í heimahúsum og geta ekki annast heimilishald eða persónulega umhirðu hjálparlaust. Þjónustan er fyrir alla aldurshópa. Almenn þjónusta er veitt á daginn, en hægt er að sækja um innlit eða styttri viðveru á kvöldin og um helgar, ef þörf er á.
Þjónustan er margbreytileg og reynt er að mæta þörfum hvers og eins. Félagslegur stuðningur, hvatning og samvera eru mikilvægir þættir í starfinu. Jafnframt aðstoðar starfsfólk félagslegrar heimaþjónustu við almenn heimilisstörf. Starfsfólkið vinnur í nánu samstarfi við starfsfólk heimahjúkrunar, þegar við á, með það að markmiði að samþætta þjónustuna og veita betri þjónustu.
Einstaklingar og fjölskyldur í Vesturbæ sækja um félagslega heimaþjónustu í Þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Vesturgarði, Hjarðarhaga 45-47 síma 411-1700.
Umsóknareyðublöð má fá í þjónustumiðstöðinni og á Rafrænu Reykjavík. (pdf-skjal)
Umsóknum er skilað í þjónustumiðstöðina og þá mun félagsráðgjafi hafa samband við viðkomandi, koma í heimsókn og gera mat á þjónustuþörf. Nánari upplýsingar eru í þjónustumiðstöðinni í síma 411-1700. Til að senda tölvupóst til heimaþjónustunnar smelltu þá hér.