Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Hverfisráð Vesturbæjar

Hverfisráð Vesturbæjar hefur aðsetur á þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Vesturgarði, Hjarðarhaga 45-47.

Kosin eru af DSÆ lista án atkvæðagreiðslu 15. júní 2010:

Kjörnir: Til vara:
Gísli Marteinn Baldursson, formaður Katrín Snæhólm Baldursdóttir
Hjördís G. Thors Páll Hjaltason
Sverrir Bollason Reynir Sigurbjörnsson
Sólveig Hauksdóttir Vala Ingimarsdóttir
Hildur Sverrisdóttir Ólafur R. Jónsson
Áheyrnarfulltrúi VG  
Snærós Sindradóttir  Líf Magneudóttir

Um hverfisráð

Hverfisráð eru starfandi í öllum 10 hverfum borgarinnar. Hlutverk þeirra er að stuðla að hvers konar samstarfi innan hverfis, móta stefnu og gera tillögur til borgarráðs sem varða verksvið þeirra. Þá geta hverfisráð gert tillögur um samræmingu á þjónustu borgarstofnana í einstökum hverfum.

Hverfisráð eru vettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda, og eru virkir þátttakendur í allri stefnumörkun hverfanna. Þannig eru hverfisráð ráðgefandi fyrir starfsemi þjónustumiðstöðva í hverfum og eiga að stuðla að eflingu félagsauðs í hverfum.

Þá ber hverfisráðunum að stuðla að kynningu skipulags, framkvæmda og þjónustu borgarstofnana í hverfunum og beita sér fyrir því að samráð verði haft við íbúa.

Hverfisráðin eru skipuð fimm fulltrúum kosnum af borgarstjórn og jafn mörgum til vara. Borgarstjórn kýs formann úr hópi kjörinna nefndarmanna

Ábendingar um efni á síðurnar má senda með því að smella hér.