Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Félagsstarf fyrir fólk með þroskahömlun

40+ sem er opið félagsstarf einu sinni í viku. (Sjá nánar krækju hér til vinstri).

Meginmarkmið félagsstarfsins er að stofna, styrkja og viðhalda, velmetnum félagslegum hlutverkum, eins að styðja hinn fatlaða til sjálfstæðis, sem einstakling og í samskiptum við aðra. Í starfinu er lögð áhersla á þrjá meginþætti; efling sjálfstrausts, efling sjálfstæðis og eflingar samkenndar með öðrum.

Hugmyndafræði 40+ byggir á:

Kenningum Wolfs Wolfensberger um gildisaukandi félagsleg hlutverk (GFH), þ.e. að stofna, styrkja og viðhalda, vel metnum félagslegum hlutverkum fyrir fólk sem er vanmetið. Menningarlega vel metnar leiðir eru þær sem hæfa aldri, eru vel metnar, venjulegar og í samræmi við samfélagið í heild.

 

Hugmyndafræð og markmiðum  Ævintýrameðferðar (Adventure Therapy) sem miða að því virkja einstaklingin til þátttöku, auka sjálfstraust hans, jafnframt að æfa samvinnu og kenna honum að setja sér markmið.   Ævintýarmeðferðirn er tæki til að þjálfa félagsfærni meðal  jafninga  og við öruggar aðstæður, svo og að auka sjálftraust og bæta sjálfsmynd þátttakenda.

 

Að veita einstaklingi stuðning þegar hann þarf á því að halda og leyfa hverjum og einum að prófa sig áfram. Hvetja til færni sem nýtist síðar við að vinna úr málum án stuðnings. Eflingu sjálfstrausts, sjálfstæðis og samkenndar með öðrum.



Sendu inn ábendingu eða hugmynd - Hverfið mitt

Framkvæmdir

Hverfislögregla í Vesturbæ