Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Vesturbær

Gamli Vesturbærinn, Bráðræðisholt, Grandar, Hagar, Melar, Skjól, Grímstaðaholt, Skildinganes og Litli Skerjafjörður. 

Vesturbær

Vesturbær er eitt af gömlu hverfunum í Reykjavík og státar af langri og merkilegri sögu. Í suðri liggur Vesturbær að Skerjafirði og að Kollafirði í norðri. Vesturbærinn liggur að Seltjarnarnesi í vestri en að miðborginni í austri og er hverfið að mörgu leyti mjög tengt miðborginni.

Íbúar Vesturbæjar voru 15.967  í árslok 2009 og ber íbúasamsetningin í hverfinu þess merki að hverfið er gróið enda helst aldursskipting hverfisins í hendur við meðaltal Reykjavíkur. Talsverð atvinnustarfssemi er í hverfinu einkum við höfnina og í Örfyrisey enda hverfið nátengdt sjónum og má finna þar margar minjar um útgerð fyrr á öldum.

Nálægðin við sjóinn, Ægisíðan og Eiðisgrandi er eitt af helstu sérkennum hverfisins og fjölsóttasti göngustígur borgarinnar er einmitt á Ægisíðu enda útsýnið fagurt. Ekki má gleyma Vesturbæjarlauginni sem er gríðarlega vinsæl og KR sem á sér djúpar og sterkar rætur meðal hverfisbúa.

Reykjavíkurborg er með víðtæka þjónustu í hverfinu en miðpunltur hennar er Vesturgarður, þjónustumiðstöð hverfisins sem starfrækt er á Hjarðarhaga 45–47.