Framkvæmdir í Vesturbæ 2010

Hér að neðan er yfirlit yfir helstu framkvæmdir á vegum Reykjavíkurborgar í hverfinu á árinu 2010
Völundarverk - Gröndalshús
– Unnið að endurbyggingu Gröndalshúss.
Umferðaröryggismál
– Gönguleiðir skólabarna, 30km hverfi og endurbætur á vástöðum. Verið er að vinna að greiningu á þörf fyrir aðgerðir ásamt forgangsröðun framkvæmda í borginni í heild á vegum Umhverfis- og samgöngusviðs.
Verkefni sem urðu fyrir valinu í íbúakosningu
– Fjölgun bekkja og ruslastampa í hverfinu.
– Trimmtæki við göngustíg á Ægissíðu.
– Nestisaðstaða við Lynghaga og á Landakotstúni.
– Gróðursetning á Lynghaga, Landakotstúni, Álagranda og Granaskjóli.
– Listaverk á Hagatorgi og við Hótel Sögu lýst upp.