Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Niðurstaða íbúakosningar í Vesturbæ

Kjóstu í þínu hverfi

Netkosning um forgangsröðun fjármuna til nýframkvæmda og viðhaldsverkefna í hverfum Reykjavíkurborgar fór fram 2. – 14. desember 2009. Kosið var um forgangsröðun framkvæmda og voru verkefni í flokknum Umhverfi og útivist sett efst í forgangsröð af íbúum í átta hverfum af tíu. Aðrir verkefnaflokkar sem valið stóð um voru Leikur og afþreying og samgöngur.

Í Vesturbænum settu íbúar verkefnaflokkinn Umhverfi og útivist efst í forgangsröðina. Eftirfarandi verkefni fara því á framkvæmdalista fyrir árið 2010 í hverfinu:

a) Fjölga bekkjum og ruslastömpum í hverfinu - Verður framkvæmt í sumar.

b) Trimmtæki við göngustíg á Ægisíðu - Verður framkvæmt í sumar.

c) Nestisaðstaða við Lynghaga - Verður framkvæmt í sumar.

d) Nestisaðstaða á Landakotstúni - Verður framkvæmt í sumar.

e) Gróðursetning á Lynghaga / Landakotstúni / Álagranda / Granaskjóli - Verður framkvæmt í haust.

f) Lýsing á listaverk við Hagatorg (Erling BB) og listaverk við Hótel Sögu (Natóeldur) - Verður framkvæmt í sumar.